Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Fóður

Undirritunardagur

23. mars 2026

Útgáfudagur

10. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 345/2026

23. mars 2026

REGLUGERÐ

um (48.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 260/2025 frá 5. desember 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2963 frá 29. nóvember 2024 um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB að því er varðar aðferðarlýsingar vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í landbúnaði sem tekin var inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2025 frá 5. desember 2025. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 185.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. mars 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Donika Kolica.

B deild — Útgáfudagur: 10. apríl 2026

Tengd mál