Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
7. nóvember 2017
Útgáfudagur
22. nóvember 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 993/2017
7. nóvember 2017
REGLUR
um breyingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- Á eftir orðunum „samráðsnefnd háskólaráðs um kjaramál“ í 1. málslið 1. mgr. bætast við orðin: skipulagsnefnd háskólasvæðisins.
- Á eftir orðinu „kennslumálanefnd“ í 3. málslið 1. mgr. bætast við orðin: skipulagsnefnd háskólasvæðisins.
2. gr.
Á eftir 18. mgr. 92. gr. reglnanna bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Diplómanám í blaða- og fréttamennsku er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í meistaranám í blaða- og fréttamennsku, að uppfylltum inntökuskilyrðum.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 7. nóvember 2017.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 22. nóvember 2017