Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Byggðamál
Undirritunardagur
8. apríl 2026
Útgáfudagur
13. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 361/2026
8. apríl 2026
AUGLÝSING
um (3.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.
1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:
Árneshreppur (löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Norðurfjarðar með eftirfarandi breytingum:
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
- Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
- Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.
Skagafjörður (breyting á almennum skilyrðum, vinnsluskylda).
Ákvæði reglugerðar nr. 1334/2025 gilda um úthlutun byggðakvóta Sauðárkróks og Hofsóss með eftirfarandi breytingum:
- Nýr málsl. bætist við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi: Hámarksúthlutun fiskiskipa af því aflamarki sem fallið hefur innan viðkomandi byggðarlags verður 24 þorskígildistonn á skip.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025.
- Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem landað er í sveitarfélagi úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan viðkomandi sveitarfélags, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
- Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2025 til 31. ágúst 2026.
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 8. apríl 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
B deild — Útgáfudagur: 13. apríl 2026