Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Ölfus

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

29. apríl 2025

Útgáfudagur

15. maí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 506/2025

29. apríl 2025

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Stóragerði lóð 1, nýtt deiliskipulag.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. febrúar 2025 deiliskipulag fyrir landspilduna Stóragerði lóð 1. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir tveimur lóðum um 5.000 m² hvor, þar sem heimilt er að byggja upp til fastrar búsetu og stunda minni háttar atvinnustarfsemi.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

 

Hlíðarendi, vatnsverksmiðja, óveruleg breyting á deiliskipulagi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. mars 2025 óverulega breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda í Ölfusi. Breytingin felur í sér stækkun lóðar um 0,4 ha til suðurs og stækkun byggingarreits.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

 

Riftún, nýtt deiliskipulag.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. mars 2025, deiliskipulag fyrir landið Riftún í Ölfusi. Á landinu er skipulagðar 9 frístundalóðir og 3 ný íbúðarhús.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

 

Laxabraut 12, nýtt deiliskipulag.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 27. febrúar 2025, deiliskipulag fyrir lóðina Laxabraut 12. Fyrirhuguð er uppbygging á starfsmannaaðstöðu sem nýtt verður aðallega í tengslum við uppbyggingu og starfsemi landeldis First Water ehf. á Laxabraut 15-23 en eftir atvikum annarra fyrirtækja í samráði við sveitarfélagið. Heimild er fyrir búsetu allt að 200 starfsmanna, ásamt eldhúsi og mötuneyti fyrir sambærilegan fjölda.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Þorlákshöfn, 29. apríl 2025.

Sigurður Steinar Ásgeirsson,

skrifstofu- og verkefnastjóri umhverfis- og framkvæmdasviði.

B deild - Útgáfud.: 15. maí 2025

Tengd mál