Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Mosfellsbær

Málaflokkur

Mosfellsbær, Gatnagerðargjöld

Undirritunardagur

20. desember 2023

Útgáfudagur

27. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1496/2023

20. desember 2023

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um gatnagerðargjöld í Mosfellsbæ, nr. 496/2017.

1. gr.

2. mgr. 4. gr. samþykktarinnar breytist og verður svohljóðandi:

Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir:

Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu 15%
Parhús, tvíbýlishús 15%
Raðhús, keðjuhús 15%
Fjölbýlishús 15%
Verslunar-, þjónustuhúsnæði o.fl. 15%
Iðnaðarhúsnæði 15%
Hesthús 15%
Gróðurhús 2%
Hús til landbúnaðarafnota 7,5%*
Bílakjallarar 3,75%
Færanlegar kennslustofur 1%**

* Hér er m.a. um að ræða mannvirki sem tengjast búrekstri, þ.e. sem eru reist fyrir geymslu á búfénaði, sem og tækja- og áhaldageymslur vegna búrekstrar.
** Færanlegar kennslustofur er samheiti yfir færanlegt og flytjanlegt húsnæði sem nota á við fræðslu- og kennslustarf á grunnskóla-, leikskóla-, tónlistarskóla-, framhaldsskóla-, háskóla-, og iðnmenntunarstigi og ráðgert er að byggingar standi ekki til frambúðar á viðkomandi lóð og skemur en 10 ár. Gatnagerðargjöld sem lögð eru á þessa hústegund eru óendurkræf þegar húsnæði er flutt af lóðinni, en greidd gatnagerðargjöld má þó láta ganga til greiðslu gatnagerðargjalda þegar sami aðili reisir varanlegt mannvirki á lóðinni, og ganga þannig þegar greidd gatnagerðargjöld af færanlegum kennslustofum til greiðslu sé kennslustofa flutt á aðra lóð.

2. gr.

Breytingar þessar, sem samþykktar voru á fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 6. desember 2023, skv. heimild í 12. gr. laga nr. 153/2006, öðlast þegar gildi.

Mosfellsbæ, 20. desember 2023.

Þóra M. Hjaltested bæjarlögmaður.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023

Tengd mál