Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ísafjarðarbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Ísafjarðarbær
Undirritunardagur
20. júlí 2026
Útgáfudagur
7. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 880/2026
20. júlí 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Ísafjarðarbæ.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Breyting á deiliskipulagi Mjólkárvirkjunar í Arnarfirði.
Fyrirhugaður jarðstrengur vegna Mjólkárlínu 2, er færður sunnar frá nýju tengivirki við Mjólká, nærri þeim stað þar sem hann var upprunalega áætlaður, í samráði við landeiganda og Minjastofnun Íslands. Meginmarkmið framkvæmdarinnar er að auka áreiðanleika raforkuafhendingar á sunnanverðum Vestfjörðum.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Ísafjarðarbæ, 20. júlí 2026.
Helga Þuríður Magnúsdóttir,
verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði.
B deild — Útgáfudagur: 7. ágúst 2026