Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál, Akureyri, Þingeyjarsýslur, Eyjafjarðarsýsla, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

17. desember 2025

Útgáfudagur

22. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1430/2025

17. desember 2025

GJALDSKRÁ

Norðurorku hf. fyrir hitaveitu.

1. gr.

Norðurorka hf. selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt gjaldskrá þessari og skilmálum Norðurorku hf. fyrir heitt vatn. Gjaldskráin gildir á öllu orkuveitusvæði Norðurorku hf. Á gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari leggjast virðisaukaskattur og önnur gjöld samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma.

2. gr.

Norðurorka hf. takmarkar allajafna ekki aðgang húsveitu að vatni umfram það er heimæð og veitukerfi gera. Þó er veitunni heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstingsbreytingum og er starfsfólki veitunnar einu heimilt að breyta stillingu hans.

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal greiða:

A.  Heitavatnsgjald (Akureyri og nágrenni).

Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns. Grunnverð kr. 203,61.

Samkvæmt orkuígildismæli fyrir hverja kílóvattstund (kWst.). Grunnverð er kr. 4,74.

B.  Fast gjald (óháð staðsetningu).

Norðurorka hf. ákveður mælisstærð fyrir hverja húsveitu í samræmi við stærð heimæðar. Greiða skal fast gjald sem fer eftir stærð vatnsmælis sem hér segir:

Fast gjald fyrir hvern mæli:

Mælir Grunnverð kr./dag
15 til 20 mm     106
25 til 32 mm     440
40 mm 1.728
50 mm og stærri 3.333

C.  Heimæðargjald (allar veitur nema Reykjaveita). Aðalheimæðar.

Þvermál inntaks Grunnverð kr.
DN20    650.912
DN25    841.502
DN32 1.105.892
DN40 1.513.805
DN50 2.156.262
DN65 3.191.342
DN80 4.893.280

Frístundahús:

Þvermál inntaks Grunnverð kr.
22 mm pex 650.912
28 mm pex 781.094

Lengdargjald:

  1. Lengdargjald í dreifbýli er 7.935 kr./m. Lengdargjald er greitt frá stofnlögn að tengistað heimæðar að frádregnum 20 metrum.
  2. Lengdargjald í þéttbýli er 14.108 kr./m. Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðarmarka.

D.  Bráðabirgðaheimæðargjald (óháð staðsetningu).

Þvermál Grunnverð kr. Lengdargjald (kr./m)
DN20 - DN32 72.954 11.603

Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra í heimæð til bráðabirgðatengingar. Bráðabirgðaheimæðar skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.

4. gr. Ólafsfjörður.

Fast gjald mæla og heimæðargjald er innheimt samkvæmt B- og C-lið 3. gr. gjaldskrár þessarar.

Heitavatnsgjald fyrir hvern rúmmetra vatns er kr. 124,62.

Heitt vatn er selt eftir mínútulítrum eða vatnsmælum. Fast gjald fyrir hemil er kr. 106 á dag óháð stærð.

Heitavatnsgjald á mánuði fyrir hvern mínútulítra í hámarksstillingu hemils er kr. 2.812.

5. gr. Reykjaveita.

Fyrir afnot af heitu vatni skal greiða:

A.  Heitavatnsgjald skv. orkuígildismæli fyrir hverja kílóvattstund (kWst.). Grunngjald er kr. 6,91.

B.  Fast gjald fer eftir stærð mælis og er greitt skv. B-lið 3. gr. gjaldskrár þessarar.

C.  Heimæðargjald:

      Aðalheimæð:

Þvermál inntaks Grunnverð kr.
DN20    856.982
DN25 1.116.097
DN32 1.476.589
DN40 2.032.782
DN50 2.908.472
DN65 4.319.653

Frístundahús:

Heimæðargjald, 22 mm pex inntak. Allt að 50 m frá stofnæð.

Heimæðargjald, 28 mm pex inntak. Allt að 50 m frá stofnæð.

Þvermál inntaks Grunngjald kr.
22 mm pex 1.131.463
28 mm pex 1.357.756
  1. Lengdargjald í dreifbýli er 7.935 kr./m. Lengdargjald er greitt frá stofnlögn að tengistað heimæðar að frádregnum 50 m.
  2. Lengdargjald í þéttbýli er 14.108 kr./m. Lengdargjald skal greitt fyrir hvern metra umfram 20 m innan lóðarmarka.

6. gr. Ýmis ákvæði.

Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp eða ef vatnsmælir bilar þannig að mæling bregst, áætlar veitan vatnsnotkun með hliðsjón af hitaþörf hússins. Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta samkvæmt gjaldskrá í samræmi við fast gjald sem tekur mið af stærð mælis.

Ef heimlagnagjald, þar með talið lengdargjald, stendur ekki undir kostnaði s.s. í frágengnu hverfi er heimæðargjald fyrir nýja eða stækkaða heimæð greitt samkvæmt kostnaðaráætlun eða raunkostnaði samkvæmt nánara samkomulagi við umsækjanda.

Tengigrindargjald er innifalið í heimæðargjaldi en sé óskað eftir auka mæli gildir gjald skv. 7. gr. gjaldskrár þessarar.

Í sumarhús, frístundahús, verbúðir, hesthús og sambærileg hús skal settur skápur á útvegg fyrir inntak heimlagnar samkvæmt nánari leiðbeiningum sem koma fram í upplýsingariti heimlagna hjá Norðurorku hf., sbr. 8. gr. reglugerðar um tæknilega tengiskilmála hitaveitna nr. 488/2021. Hafi áhleyping eða tenging ekki átt sér stað einu ári eftir að heimlögn er tilbúin til tengingar hefst innheimta skv. gjaldskrá í samræmi við fast gjald sem tekur mið af stærð mælis.

Aðilar í atvinnustarfsemi sem nýta iðnaðarvatn beint í framleiðsluferla og telja sig uppfylla skilyrði afsláttar skulu sækja um hann hjá Norðurorku hf. Slíkur afsláttur getur numið að lágmarki 5% og að hámarki 30% af rúmmetra- og kílóvattsstundagjaldi. Afsláttarkjör gilda í engum tilfellum fyrir húshitun eða kranavatn. Skilmálinn gildir eingöngu þegar nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Norðurorku hf. Komi til viðbragðsástands fellur afsláttur niður á meðan ástand varir. Mæld notkun á tímabili skerðingar nýtur þannig ekki afsláttar. Vatn til iðnaðarnotkunar ber 24% vsk.

Sundlaugar sem opnar eru almenningi og telja sig uppfylla skilyrði afsláttar skulu sækja um hann hjá Norðurorku hf. Slíkur afsláttur getur numið að lágmarki 5% og að hámarki 30% af rúmmetra- og kílóvattsstundagjaldi. Skilmálinn gildir eingöngu þegar nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Norðurorku hf. Komi til viðbragðsástands fellur afsláttur niður á meðan ástand varir. Mæld notkun á tímabili skerðingar nýtur þannig ekki afsláttar.

Snjóbræðsla íþróttavalla utanhúss í fullri stærð (löglegir keppnisvellir) sem telja sig uppfylla skilyrði afsláttar skulu sækja um hann hjá Norðurorku hf. Slíkur afsláttur getur numið að lágmarki 5% og að hámarki 30% af rúmmetra- og kílóvattsstundagjaldi til upphitunar valla sem skulu vera á sér mæli. Skilmálinn gildir eingöngu þar sem nægilegt vatn er til staðar og fullnægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Norðurorku hf. Komi til viðbragðsástands fellur afsláttur niður á meðan ástand varir. Mæld notkun á tímabili skerðingar nýtur þannig ekki afsláttar. Vatn til notkunar fyrir snjóbræðslu á íþróttavöllum ber 24% vsk.

7. gr. Ýmis önnur gjöld.

Seðilgjald eða tilkynningar- og greiðslugjald bætist við reikning eftir því sem við á samkvæmt verði á hverjum tíma, en það byggist á raunkostnaði.

  kr.

Auka álestur per notkunarstað
Gjald fyrir breytingu/aukamæli
Afgreiðslugjald á vatni vegna atvinnurekstrar
Afgreiðslugjald á vatni vegna atvinnurekstrar utan dagvinnutíma
Lokunargjald/opnunargjald
Lokunargjald/opnunargjald utan dagvinnutíma
Lokunargjald ef grafa þarf niður að heimæð
Innheimtugjald samkvæmt gjaldskrá Motus

6.420
20.416
6.815
30.671
6.815
30.671
285.786

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af stjórn Norðurorku hf., sem sett er samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 og lögum nr. 159/2002 um stofnun hlutafélags um Norðurorku, staðfestist hér með til að öðlast gildi 1. janúar 2026. Þar með fellur úr gildi gjaldskrá Norðurorku hf. sama efnis, nr. 1685/2024.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 17. desember 2025.

F. h. r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Steinar Örn Jónsson.

B deild — Útgáfudagur: 22. desember 2025

Tengd mál