Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

4. júlí 2023

Útgáfudagur

18. júlí 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 771/2023

4. júlí 2023

REGLUR

um upplýsingagjöf vegna umsóknar um starfsleyfi sem lánastofnun.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um veitingu starfsleyfis sem lánastofnun samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Upplýsingar vegna umsóknar um starfsleyfi sem lánastofnun.

Lögaðili sem sækir um starfsleyfi sem lánastofnun skv. II. kafla laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, skal veita upplýsingar í samræmi við reglugerð (ESB) 2022/2580 og á því formi sem fram kemur í reglugerð (ESB) 2022/2581, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. reglna þessara öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2580 frá 17. júní 2022 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina upplýsingarnar sem fyrirtæki á að leggja fram í umsókn um starfsleyfi sem lánastofnun og tilgreina hindranirnar sem geta komið í veg fyrir skilvirkt eftirlit lögbærra yfirvalda, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2023 frá 17. mars 2023.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2581 frá 20. júní 2022 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar veitingu upplýsinga í umsókn um starfsleyfi sem lánastofnun, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2023 frá 17. mars 2023.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2580 og 2022/2581 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R2580, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 335, þann 29. desember 2022, bls. 64-85;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R2581, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 335, þann 29. desember 2022, bls. 86-102.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. tölul. 1. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 4. júlí 2023.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2023

Tengd mál