Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

18. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 56/2026

11. júní 2026

LÖG

um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæður).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

1. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: Lög þessi gilda um Háskóla Íslands, Háskóla Íslands á Hólum sem aðildarháskóla háskólasamstæðu Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Landbúnaðarháskóla Íslands sem reknir eru sem opinberir háskólar og lúta yfirstjórn ráðherra.

2. gr.

Við 1. mgr. 4. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: háskólasamstæður, sbr. 4. gr. a.

3. gr.

Á eftir 4. gr. laganna kemur ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Háskólasamstæða.

Háskólum er heimilt að stofna háskólasamstæðu þar sem tveir eða fleiri sjálfstæðir háskólar sem njóta viðurkenningar samkvæmt lögum um háskóla sameinast undir merkjum háskólasamstæðu sem lýtur sameiginlegri yfirstjórn. Háskólar sem tilheyra háskólasamstæðu skiptast í samstæðuháskóla og aðildarháskóla.

Samstæðuháskóli leiðir háskólasamstæðu og rektor og háskólaráð þess háskóla fara með stjórn samstæðunnar og þeirra háskóla sem undir hana heyra í samræmi við 5. og 8. gr. laga þessara og 15. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006. Þeir háskólar sem sameinast samstæðuháskóla kallast aðildarháskólar og bera sama heiti og samstæðuháskóli auk tilvísunar til staðsetningar eða hlutverks.

Innan háskólasamstæðu skulu aðildarháskólar hafa sömu stöðu og skólar eða fræðasvið innan samstæðuháskóla skv. IV. kafla. Daglegri starfsemi aðildarháskóla stýrir forseti skólans sem ráðinn er af rektor að undangenginni auglýsingu. Forseti aðildarháskóla skal hafa sama hlutverk og stöðu og aðrir forsetar skóla eða fræðasviða innan samstæðuháskóla. Þá skal sérstök stjórn starfa við aðildarháskóla sem gegnir sama hlutverki og stjórnir skóla eða fræðasviða. Nánar skal kveðið á um stöðu aðildarháskóla, ráðningu, skipan og hlutverk forseta aðildarháskóla, og skipan og hlutverk stjórnar aðildarháskóla, í reglum sem háskólaráð setur, að fengnu samþykki samstarfsráðs.

Við háskólasamstæðu starfar samstarfsráð. Rektor og forseti hvers aðildarháskóla eiga sæti í ráðinu og skal rektor vera formaður. Auk þeirra situr einn fulltrúi samstæðuháskóla og einn fulltrúi hvers aðildarháskóla í ráðinu. Rektor og forsetar skulu tilnefna fulltrúa frá sínum skóla í ráðið. Samstarfsráð fer með mikilvægar ákvarðanir sem varða m.a. samstarf um nám, kennslu og rannsóknir, auk ákvarðana sem varða þróun og starfsemi aðildarháskóla innan háskólasamstæðu. Samstarfsráð markar jafnframt stefnu og er ráðgefandi fyrir rektor og háskólaráð um málefni aðildarháskóla. Ákvarðanir sem varða grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan aðildarháskóla er óheimilt að taka án þess að þær hafi hlotið einróma samþykki í samstarfsráði. Nánar skal kveðið á um hlutverk og verkefni samstarfsráðs í starfsreglum sem ráðið setur sér, að fengnu samþykki háskólaráðs.

Samstæðuháskóli fer með sameiginlega stjórnsýslu og stoðþjónustu háskólasamstæðu á grundvelli reglna sem háskólaráð setur.

Stofnun og aðild að háskólasamstæðu skal byggjast á sérstöku samkomulagi á milli viðkomandi háskóla og ráðherra þar sem fjallað er um markmið, stjórnskipulag, hlutverk, fjárhagsmálefni og eftir atvikum annað sem talin er þörf á í slíku samkomulagi.

Um hlutverk og starfsemi háskólasamstæðu að öðru leyti gilda lög þessi, reglur sem háskólaráð setur á grundvelli þeirra sem og ákvæði laga um háskóla.

4. gr.

Við 3. tölul. 3. mgr. 6. gr. laganna bætist: og skal annar þeirra hafa þekkingu og reynslu af háskóla- og rannsóknarstarfi á landsbyggðinni.

5. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.

Ákvæði til bráðabirgða.

Hinn 1. júlí 2026 sameinast Háskóli Íslands og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Háskóli Íslands verður samstæðuháskóli og Hólaskóli – Háskólinn á Hólum aðildarháskóli samstæðunnar og ber heitið Háskóli Íslands á Hólum.

Frá 1. júlí 2026 tekur Háskóli Íslands við eignum og skuldbindingum Hólaskóla – Háskólans á Hólum. Sama gildir um ónýttar fjárheimildir í fjárlögum fyrir Hólaskóla – Háskólann á Hólum fyrir árið 2026 sem og eldri fjárheimildir skólans. Þrátt fyrir 1. málsl. skulu reikningsskil beggja háskóla miðast við rekstur þeirra fram til 31. desember 2026. Þá flyst viðurkenning Hólaskóla – Háskólans á Hólum á fræðasviði auðlinda- og búvísinda auk tilgreindra undirflokka til Háskóla Íslands.

Hinn 1. júlí 2026 verður embætti rektors Hólaskóla – Háskólans á Hólum lagt niður. Sama gildir um háskólaráð skólans. Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 4. gr. a laganna verður núverandi rektor Hólaskóla – Háskólans á Hólum forseti Háskóla Íslands á Hólum til 30. júní 2031. Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, gilda ekki um ráðstöfun starfs samkvæmt ákvæði þessu.

Frá 1. júlí 2026 flytjast öll störf kennara sem ráðnir eru ótímabundið og uppfylla skilyrði 18. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006, og annarra starfsmanna sem ráðnir eru ótímabundið við Hólaskóla – Háskólann á Hólum yfir til Háskóla Íslands. Ákvæði 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, gilda ekki við ráðstöfun starfa samkvæmt ákvæði þessu. Um flutning þessara starfa fer að öðru leyti eftir ákvæðum sömu laga.

Nemendur sem eru í námi 1. júlí 2026 við Hólaskóla – Háskólann á Hólum eiga rétt á að ljúka því námi við Háskóla Íslands á Hólum samkvæmt því námsskipulagi sem í gildi er á þeim tíma, miðað við gildandi reglur um námsframvindu.

Tilnefning fulltrúa ráðherra í háskólaráð skv. 3. tölul. 3. mgr. 6. gr. laganna kemur fyrst til framkvæmda 1. júlí 2026 þegar nýtt háskólaráð Háskóla Íslands tekur til starfa.

Þrátt fyrir ákvæði 3. tölul. 3. mgr. 6. gr. laganna skal forseti Háskóla Íslands á Hólum eiga sæti í háskólaráði í tvö ár, frá 1. júlí 2026, í stað þess fulltrúa ráðherra sem skal hafa þekkingu og reynslu af háskóla- og rannsóknarstarfi á landsbyggðinni.

Gjört í Reykjavík, 11. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Logi Már Einarsson.

A deild — Útgáfudagur: 18. júní 2026

Tengd mál