Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
14. apríl 2026
Útgáfudagur
29. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 413/2026
14. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna frístundabyggðar F22 í landi Hjálmholts.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun staðfesti 14. apríl 2026 breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2017–2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. mars 2026.
Í breytingunni felst breytt afmörkun frístundabyggðar F22 í landi Hjálmholts sem færist og liggur meðfram Hvítá til vesturs eftir breytingu.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 14. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 29. apríl 2026