Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Landbúnaður, Matvæli, Innflutningur, Fóður, Dýravernd
Undirritunardagur
9. júlí 2020
Útgáfudagur
22. júlí 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 101/2020
9. júlí 2020
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu.
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
dýralækna
og
heilbrigðisþjónustu
við
dýr,
nr.
66/1998,
með
síðari
breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
-
2.
mgr.
orðast
svo:
Þeir einir mega stunda dýralækningar hér á landi sem hlotið hafa til þess leyfi Matvælastofnunar og skulu dýralæknar undirrita eiðstaf þar að lútandi. Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um veitingu leyfis til dýralækninga. - 1. málsl. 3. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „Heimilt er“ í 6. mgr. kemur: Matvælastofnun er heimilt; og orðin „ef Matvælastofnun mælir með því“ í sömu málsgrein falla brott.
2. gr.
Í stað orðsins „ráðherra“ í 1. mgr. 10. gr. laganna kemur: Matvælastofnunar.
3. gr.
3. mgr. 12. gr. laganna orðast svo:
Vaktsvæði dýralækna skulu afmörkuð í reglugerð sem ráðherra setur.
II. KAFLI Breyting á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim,
nr. 25/1993, með síðari breytingum.
4. gr.
Við 1. málsl. 8. gr. laganna bætist: og annarra áður óþekktra sjúkdóma.
III. KAFLI Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993, með síðari breytingum.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. mgr. 7. gr. laganna:
- 1. málsl. orðast svo: Verðlagsnefnd skal skipuð til tveggja ára í senn.
- Lokamálsliður fellur brott.
IV. KAFLI Breyting á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru,
nr. 22/1994, með síðari breytingum.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
- Í stað 1. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Óheimilt er að flytja til landsins, framleiða eða pakka hér á landi áburði, sáðvöru, lyfjablönduðu fóðri, fóðuraukefnum og forblöndum þeirra nema tilkynna þær vörur fyrst og láta skrá hjá Matvælastofnun sem staðfestir skráningu vörunnar. Sama gildir um fóður sem flutt er inn frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
-
Á
eftir
1.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Framleiðendum og innflytjendum er skylt fyrir 1. febrúar ár hvert að tilkynna til Matvælastofnunar heildarmagn innflutts og framleidds fóðurs á undangengnu ári. Nánar skal kveðið á um tilkynningar til Matvælastofnunar í reglugerð sem ráðherra setur á grundvelli 7. gr. -
2.
mgr.
orðast
svo:
Ráðherra ákveður með reglugerð hvaða upplýsingar skulu fylgja vörum sem lög þessi ná yfir og kröfur um merkingar og lýsingu á notkun einstakra vöruflokka.
V. KAFLI
Breyting á lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
- Á eftir 4. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Matvælafyrirtæki sem starfrækja fiskeldisstöðvar og eru með gilt rekstrarleyfi samkvæmt lögum um fiskeldi þurfa ekki starfsleyfi fyrir frumframleiðslu og er ekki skylt að tilkynna slíka framleiðslu til Matvælastofnunar áður en hún hefst.
- Orðin „til tiltekins tíma“ í 1. málsl. 2. mgr. og orðin „áður en gildistími þess er liðinn“ í lokamálslið sömu málsgreinar falla brott.
- Orðið „gildistíma“ í 4. mgr. fellur brott.
- Í stað orðsins „ráðherra“ í 5. mgr. kemur: Matvælastofnun.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. mgr. 25. gr. laganna:
- Í stað orðsins „Ráðherra“ í 2. og 3. málsl. kemur: Matvælastofnun.
- Í stað orðsins „Matvælastofnunar“ í 2. málsl. kemur: stofnunarinnar.
- Í stað orðsins „honum“ í 3. málsl. kemur: ráðherra.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, með síðari breytingum.
9. gr.
Orðin „og skulu þær staðfestar af ráðherra“ í 2. málsl. 4. mgr. 7. gr. laganna falla brott.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, með síðari breytingum.
10. gr.
Í stað orðsins „ráðherra“ í 1. málsl. 1. mgr. 13. gr. laganna kemur: Matvælastofnun.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um yrkisrétt, nr. 58/2000, með síðari breytingum.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 1. gr. laganna:
- Í stað orðanna „yrkisréttarnefndar, sbr. 22. gr.“ í 2. málsl. kemur: Matvælastofnunar.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Matvælastofnun skal hafa aðgang að þekkingu á hugverkarétti og ræktun og kynbótum nytjaplantna.
12. gr.
- Í stað orðanna „yrkisréttarnefndar“ í 1. mgr. og „Yrkisréttarnefnd“ í 5. mgr. 3. gr. laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Matvælastofnun.
- Í stað orðanna „nefndin“ í 5. mgr. 3. gr., „nefndinni“ í 2. mgr. 8. gr., „nefndarinnar“ í 2. mgr. 9. gr. og „nefndina“ í 1. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: stofnunin.
13. gr.
22. og 23. gr. laganna falla brott.
14. gr.
Fyrirsögn V. kafla laganna verður: Viðurlög o.fl.
IX. KAFLI
15. gr.
Í stað orðanna „1. janúar 2021“ í 7. gr. kemur: 1. janúar 2022.
X. KAFLI Gildistaka og brottfall laga.
16. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi eftirfarandi lög:
- Lög um breyting nokkurra laga, sem varða sölu og meðferð íslenskra afurða, nr. 79/1935.
- Lög um gelding húsdýra, nr. 123/1935.
- Lög um búfjártryggingar, nr. 20/1943.
- Lög um að tryggja manneldisgildi hveitis, nr. 30/1947.
- Lög um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán, nr. 15/1962.
- Lög um breyting á lausaskuldum bænda í föst lán, nr. 31/1969.
- Lög um greiðslu verðjöfnunargjalds af sauðfjárafurðum, nr. 105/1978.
- Lög um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán, nr. 33/1979.
- Lög um skuldbreytingar vegna loðdýraræktar, nr. 112/1989.
- Lög um sameiningu Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda í ein heildarsamtök bænda, nr. 130/1994.
- Lög um átaksverkefni um framleiðslu og markaðssetningu vistvænna og lífrænna afurða, nr. 27/1995.
Lög um flokkun og mat á gærum og ull, nr. 57/1990, falla úr gildi 1. nóvember 2021.
Gjört á Bessastöðum, 9. júlí 2020.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Kristján Þór Júlíusson.
A deild - Útgáfud.: 22. júlí 2020