Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Umferðarmál, Seltjarnarnes
Undirritunardagur
28. janúar 2021
Útgáfudagur
16. febrúar 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 153/2021
28. janúar 2021
AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá nr. 722/2020 vegna stöðvunarbrota í Seltjarnarnesbæ.
1. gr.
1. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:
Stöðvunarbrotagjald vegna stöðvunarbrota, sbr. a–e-liði 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, að undanskildum a-lið 2. mgr. 29. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr., skal vera 10.000 kr.
2. gr.
2. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:
Stöðvunarbrotagjald vegna a-liðar 2. mgr. 29. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 (bílastæði fatlaðra) skal vera 20.000 kr.
Breyting á gjaldskrá þessari sem bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hefur samþykkt staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 109. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með síðari breytingum og reglum nr. 104/1988 með síðari breytingum.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 28. janúar 2021.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 16. febrúar 2021