Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Tryggingar, Vátryggingar

Undirritunardagur

10. janúar 2025

Útgáfudagur

24. janúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 58/2025

10. janúar 2025

REGLUR

varðandi útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2024 til 30. desember 2024.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.

2. gr. Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

3. gr. Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2883 frá 18. nóvember 2024 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2024 til 30. desember 2024 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 311/2024 frá 6. desember 2024.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): Stjórnartíðindi ESB, deild L, 2024/2883, hinn 19. nóvember 2024.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 10. janúar 2025.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2025

Tengd mál