Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Eyjafjarðarsýsla
Undirritunardagur
7. apríl 2026
Útgáfudagur
21. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 381/2026
7. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna athafnasvæðis og efnistöku í Bakkaflöt.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 7. apríl 2026 breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. janúar 2026.
Í breytingunni felst að nýtt athafnasvæði AT11 er skilgreint á Bakkaflöt skammt sunnan Hrafnagilshverfis. Efnistökusvæði E37 í Eyjafjarðará er einnig bætt við. Landbúnaðarsvæði minnkar sem þessu nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 7. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 21. apríl 2026