Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

10. apríl 2026

Útgáfudagur

28. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 406/2026

10. apríl 2026

REGLUR

um skilgreiningar og viðmið vegna evrópskra langtímafjárfestingarsjóða.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um evrópska langtímafjárfestingarsjóði og rekstraraðila þeirra sem hafa staðfestu eða eru markaðssettir hér á landi samkvæmt lögum nr. 115/2022 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði. Reglurnar mæla fyrir um nánari framkvæmd reglugerðar (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, eins og henni hefur verið breytt með reglugerð (ESB) 2023/606.

2. gr. Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2759 frá 19. júlí 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreint er hvenær afleiður verða notaðar einungis til að verja gegn áhættu sem er innbyggð í aðrar fjárfestingar evrópska langtímafjárfestingarsjóðsins, kröfurnar fyrir innlausnarstefnu og lausafjárstýringartæki evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs, aðstæður fyrir pörun beiðna um framsal á hlutdeildarskírteinum eða hlutabréfum í evrópskum langtímafjárfestingarsjóði, tiltekin viðmið fyrir ráðstöfun eigna evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs og tilteknir þættir við birtingu upplýsinga um kostnað, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 570-587.

3. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 15. gr. laga nr. 115/2022, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 10. apríl 2026.

Björk Sigurgísladóttir

varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Linda Kolbrún Björgvinsdóttir

framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 28. apríl 2026

Tengd mál