Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
10. júní 2026
Útgáfudagur
25. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 719/2026
10. júní 2026
REGLUR
um gagnaskil fjármálafyrirtækja.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að veita fjármálaeftirlitinu upplýsingar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr. Tíðni og form gagnaskila fjármálafyrirtækja.
Fjármálafyrirtæki skal veita fjármálaeftirlitinu upplýsingar samkvæmt sjöunda hluta A reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. lög um fjármálafyrirtæki, með þeim hætti og þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2024/3117, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/453 frá 15. mars 2021 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar sérstakar skýrslugjafarkröfur fyrir markaðsáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 301/2021 frá 29. október 2021 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 29. febrúar, bls. 36.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/3117 frá 29. nóvember 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar skýrslugjöf stofnana til eftirlitsyfirvalda samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/451, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2025 frá 13. júní 2025.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2475 frá 8. desember 2025 um breytingar á reglugerð (ESB) 2024/3117 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar skýrslugjöf stofnana til eftirlitsyfirvalda um rekstraráhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2026 frá 5. júní 2026.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/453, 2024/3117 og 2025/2475 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R0453, birt í OJ deild L, nr. 89, þann 16. mars 2021, bls. 3-14;
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R3117, birt í OJ deild L, 2024/3117, þann 27. desember 2024;
- https://eur-lex.europa.eu/eli/reg_impl/2025/2475/oj/eng, birt í OJ deild L, 2025/2475, þann 9. desember 2025.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1556/2025, um gagnaskil fjármálafyrirtækja.
Ákvæði til bráðabirgða.
Í samræmi við 1. gr. reglugerðar (ESB) 2025/2475 gilda ákvæði 12. mgr. 5. gr., sniðmát 18–24 í I. viðauka og liðir 5.1–5.7 í öðrum hluta II. viðauka framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/451 frá 17. desember 2020 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar skýrslugjöf stofnana til eftirlitsyfirvalda og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 680/2014 til 31. desember 2026. Ákvæði 15. gr. sömu reglugerðar gilda til 31. desember 2026 að því er varðar 4. mgr. 5. gr. reglugerðar (ESB) 2024/3117.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/451 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): https://eur-lex.europa.eu/eli/reg_impl/2021/451/oj/eng, birt í OJ deild L, nr. 97/1, þann 19. mars 2021.
Seðlabanka Íslands, 10. júní 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Guðmundur Óli Blöndal
forstöðumaður.
B deild — Útgáfudagur: 25. júní 2026