Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárþing ytra
Undirritunardagur
17. júlí 2026
Útgáfudagur
31. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 869/2026
17. júlí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Aldamótaskógur, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 24. júní 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir Aldamótaskóg og Melaskóg. Svæðið er hugsað sem útivistarsvæði til almennrar notkunar og snýst deiliskipulagið um að skipuleggja fjölbreyttar útivistarleiðir og áningarstaði. En einnig tryggja íbúum og almenningi gott aðgengi að útivistarsvæði. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 17. júlí 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 31. júlí 2026