Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskólinn á Akureyri
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
25. júní 2026
Útgáfudagur
10. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 794/2026
25. júní 2026
REGLUR
um breytingar á reglum um doktorsnám og doktorspróf við Háskólann á Akureyri, nr. 822/2022.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:
- 5. málsl. orðast svo: Þegar doktorsritgerð er lögð fram er meginreglan sú að tvær af greinunum þurfa að hafa verið samþykktar til birtingar af ritstjórn viðurkenndra ritrýndra tímarita en sú þriðja má vera til umfjöllunar hjá ritstjórn.
- Við bætist nýr málsliður, á eftir 5. málsl., sem orðast svo: Doktorsnámsráð getur veitt undanþágu frá meginreglunni séu fyrir því góðar og gildar ástæður.
2. gr.
Í 15. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, á eftir 4. málsl., sem orðast svo: Leiðandi fræðimenn á viðkomandi fræðasviði sem hafa ekki formlegt dósents- eða prófessorshæfi geta einnig verið samþykktir sem andmælendur.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði, eru settar á grundvelli laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 25. júní 2026.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor.
B deild — Útgáfudagur: 10. júlí 2026