Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Neytendavernd
Undirritunardagur
23. mars 2016
Útgáfudagur
31. mars 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 16/2016
23. mars 2016
LÖG
um neytendasamninga.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI Almenn ákvæði.
1. gr. Gildissvið.
Lög
þessi
gilda
um
samninga
um
sölu
á
vörum
og
þjónustu
til
neytenda
þegar
seljandi
hefur
atvinnu
af
því
að
selja
vörur
eða
veita
þjónustu.
Ákvæði
annarra
laga,
sem
hafa
að
geyma
sérreglur
gagnvart
lögum
þessum,
halda
gildi
sínu.
Lög
þessi
gilda
ekki
um:
- happdrætti,
- samninga um fjármálaþjónustu,
- tilurð, kaup eða framsal fasteigna eða réttar til fasteigna,
- smíði nýrra bygginga eða verulegar breytingar á byggingum sem eru til staðar ásamt leigu á húsnæði til íbúðarnota,
- samninga sem falla undir gildissvið laga nr. 80/1994, um alferðir, með síðari breytingum,
- samninga sem falla undir gildissvið laga nr. 120/2013, um skiptileigusamninga fyrir afnot af húsnæði í orlofi eða frístundum o.fl.,
- samninga sem gerðir eru með aðstoð sjálfsala eða sjálfvirkra verslana,
- samninga sem eru gerðir við fjarskiptafyrirtæki um opinbera símasjálfsala eða um eina síma‑, net- eða bréfasímatengingu sem neytandi hefur komið á,
- útvegun matvöru, drykkja eða annarrar vöru til daglegra heimilisnota sem seljandi sendir heim til neytanda, til dvalarstaðar hans eða vinnustaðar með sendlum sem fara tíðar og reglubundnar ferðir,
- farþegaflutninga, að undanskildu ákvæði 12. gr.,
- samninga utan fastrar starfsstöðvar þar sem greiðsla neytanda fer ekki yfir 7.045 kr.; fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) 2. nóvember 2015 (141,28).
2. gr. Skilgreiningar.
Merking hugtaka í lögum þessum er sem hér segir:
- Neytandi: Einstaklingur sem er kaupandi í viðskiptum sem lög þessi taka til í tilgangi sem er óviðkomandi starfi hans.
- Seljandi: Einstaklingur eða lögaðili, jafnt í eigu hins opinbera sem í einkaeigu, sem vegna hlutaðeigandi viðskipta kemur fram í atvinnuskyni og gerir samninga við neytendur, svo og hver sá sem í atvinnuskyni kemur fram í umboði eða fyrir hönd seljanda.
- Fjarskiptaaðferð: Sérhver aðferð sem er nothæf til þess að stofna til samnings milli neytanda og seljanda án þess að þeir hittist.
- Fjarsala: Skipulögð sala á vöru og þjónustu þar sem notuð er ein, eða fleiri, fjarskiptaaðferð við gerð samnings.
- Fjarsölusamningur: Samningur seljanda og neytanda um kaup á vöru eða þjónustu sem gerður er með fjarskiptaaðferð.
-
Samningur utan fastrar starfsstöðvar:Samningur seljanda og neytanda
- sem er gerður þegar bæði seljandi og neytandi eru viðstaddir samtímis, utan fastrar starfsstöðvar seljanda, svo sem á heimili neytanda eða vinnustað hans,
- sem er gerður þegar neytandi leggur fram tilboð við svipaðar aðstæður og lýst er í a- lið,
- sem er gerður á fastri starfsstöð seljanda eða með fjarskiptaaðferð strax eftir að haft var persónulegt og beint samband við neytanda utan fastrar starfsstöðvar seljanda, þegar seljandi og neytandi eru viðstaddir samtímis í eigin persónu,
- sem er gerður í skemmtiferð sem seljandi skipuleggur í því augnamiði að kynna og selja neytanda vörur sínar eða þjónustu.
- Föst starfsstöð: Fast húsnæði fyrir smásölu, þar sem seljandi stundar starfsemi sína að staðaldri, eða færanlegt athafnasvæði fyrir smásölu þar sem seljandi stundar reglubundna starfsemi sína.
- Varanlegur miðill: Tæki sem gerir neytanda kleift að geyma upplýsingar, sem beint er til hans persónulega, óbreyttar þannig að hann geti afritað þær og flett upp í þeim í hæfilegan tíma.
- Fylgisamningur: Samningur sem gildir um kaup neytandans á vöru eða þjónustu, sem tengist fjarsölusamningi eða samningi sem gerður er utan fastrar starfsstöðvar, og sem seljandi eða þriðji aðili lætur í té á grundvelli samkomulags milli þessa þriðja aðila og seljandans.
- Opinbert uppboð: Söluaðferð þar sem seljandi býður fram vörur eða þjónustu til neytenda, sem eru viðstaddir eða er veitt tækifæri til að vera viðstaddir uppboðið í eigin persónu, í gagnsæju útboðsferli á samkeppnisgrundvelli sem er stjórnað af uppboðshaldara og þar sem hlutskarpasti bjóðandi er skuldbundinn til að kaupa vörurnar eða þjónustuna.
- Stafrænt efni: Gögn sem eru framleidd og afhent á stafrænu formi.
- Neytendasamningur: Samningur sem fellur undir gildissvið laga þessara.
3. gr. Lögin eru ófrávíkjanleg.
Ekki er heimilt að semja um eða bera fyrir sig kjör sem eru neytanda óhagstæðari en leiða mundi af lögum þessum.
II. KAFLI Upplýsingaskylda seljanda vegna annarra samninga
en samninga utan fastrar starfsstöðvar og fjarsölusamninga.
4. gr. Upplýsingagjöf fyrir samningsgerð.
Neytandi á rétt á upplýsingum innan hæfilegs frests áður en samningur, sem ekki fellur undir III. kafla, er gerður um:
- helstu eiginleika vöru eða þjónustu sem samningurinn fjallar um,
- nafn, heimilisfang og símanúmer seljanda,
- heildarverð vöru eða þjónustu, þ.m.t. öll opinber gjöld eða, þegar varan eða þjónustan er þess eðlis að ekki er hægt með góðu móti að reikna út verðið fyrir fram, á hvern hátt verðið er reiknað út og, eftir því sem við á, allan viðbótarkostnað, afhendingar- eða póstgjöld eða, ef ekki er hægt að reikna út þennan kostnað fyrir fram með góðu móti, upplýsingar um að e.t.v. þurfi að greiða slíkan viðbótarkostnað,
- tilhögun greiðslu, afhendingu og efndir, tímann sem seljandinn skuldbindur sig til að afhenda vöruna á eða inna þjónustuna af hendi og framkvæmd og meðferð kvartana af hendi seljanda,
- lögbundin úrræði neytenda vegna galla á söluhlut eða þjónustu og eftir atvikum að viðhaldsþjónusta, þjónusta við viðskiptavini eða samningsbundin ábyrgð sé fyrir hendi ásamt skilmálum þeirra,
- gildistíma samningsins, eftir því sem við á, eða, ef samningurinn er ótímabundinn eða endurnýjast sjálfkrafa, skilyrði fyrir uppsögn samningsins,
- virkni stafræns efnis, þ.m.t. viðeigandi tæknilegar verndarráðstafanir, eftir því sem við á,
- viðeigandi rekstrarsamhæfi stafræns efnis við vélbúnað og hugbúnað sem seljandi hefur vitneskju um eða með réttu má gera ráð fyrir að hann hafi vitneskju um, eftir því sem við á.
Upplýsingar
skv.
1.
mgr.
skulu
vera
skýrar
og
greinargóðar
og
vera
aðgengilegar
neytanda,
séu
þær
ekki
augljósar
af
samhenginu.
Þetta
ákvæði
á
ekki
við
um
samninga
sem
snerta
dagleg
viðskipti
og
eru
efndir
jafnskjótt
og
samningur
er
gerður.
III. KAFLI
Upplýsingaskylda seljanda vegna samninga utan fastrar starfsstöðvar og fjarsölusamninga.
5. gr. Upplýsingagjöf fyrir samningsgerð.
Neytandi á rétt á upplýsingum innan hæfilegs frests áður en samningur utan fastrar starfsstöðvar eða fjarsölusamningur er gerður um:
- helstu eiginleika vöru eða þjónustu sem samningurinn fjallar um,
- nafn seljanda og heimilisfang, ásamt símanúmeri, bréfasímanúmeri og netfangi hans, eftir því sem við á, til að neytandi hafi tækifæri til að ná fljótt sambandi við seljanda og eiga samskipti við hann á skilvirkan hátt og, ef hann starfar á vegum annars seljanda, heimilisfang þess aðila og deili á honum,
- heimilisfang starfsstöðvar seljanda ef það er annað en skv. b-lið og, ef hann starfar á vegum annars seljanda, heimilisfang þess aðila og deili á honum sem neytandi getur beint kvörtunum til,
- heildarverð vöru eða þjónustu, þ.m.t. öll opinber gjöld, eða þegar varan eða þjónustan er þess eðlis að ekki er hægt með góðu móti að reikna út verðið fyrir fram, á hvern hátt verðið er reiknað út og, eftir því sem við á, allan viðbótarkostnað, afhendingar- eða póstgjöld og allan annan kostnað eða, ef ekki er hægt að reikna út þennan kostnað fyrir fram með góðu móti, upplýsingar um að e.t.v. þurfi að greiða slíkan viðbótarkostnað; ef um er að ræða ótímabundinn samning eða áskriftarsamning skal heildarkostnaður fyrir hvert reikningstímabil koma fram í heildarverði; ef greiðslur samkvæmt slíkum samningum eru föst fjárhæð merkir heildarverð einnig mánaðarlegan heildarkostnað; ef ekki er hægt með góðu móti að reikna út heildarverðið fyrir fram skal tilgreint á hvern hátt verðið er reiknað út,
- kostnað við að nota fjarskiptaaðferð þar sem hann er reiknaður á annan hátt en sem grunngjald,
- fyrirkomulag á greiðslum, afhendingu og hvenær hún fer fram og, eftir því sem við á, framkvæmd og meðferð kvartana af hendi seljanda,
- skilyrði, tímamörk og tilhögun réttar til að falla frá samningi, ef hann er fyrir hendi, í samræmi við 1. og 2. mgr. 19. gr. laga þessara, ásamt samræmdu stöðluðu uppsagnareyðublaði sem ráðherra gefur út í reglugerð,
- að neytandi skuli, eftir atvikum, bera kostnað af því að skila vöru ef hann fellur frá samningi og, í tilviki fjarsölusamninga, kostnað við að skila vöru sem ekki er hægt að endursenda í pósti,
- kostnað sem neytandi getur borið ef fallið er frá samningi,
- að neytandi hafi ekki rétt til að falla frá samningi ef sá réttur er ekki fyrir hendi skv. 18. gr., eða við hvaða aðstæður neytandi missir rétt sinn til að falla frá samningi, eftir því sem við á,
- lögbundin úrræði neytenda vegna galla á söluhlut eða þjónustu,
- að viðhaldsþjónusta og viðskiptaábyrgð séu fyrir hendi, eftir því sem við á, ásamt skilmálum þeirra,
- að viðeigandi siðareglur, þar sem skilgreind er hegðun seljenda sem skuldbinda sig til að fara eftir þeim að því er varðar tiltekna viðskiptahætti eða viðskiptasvið, séu fyrir hendi og hvernig megi nálgast þær, eftir því sem við á,
- gildistíma samningsins, eftir því sem við á, eða, ef samningurinn er ótímabundinn eða endurnýjast sjálfkrafa, skilyrði fyrir uppsögn hans,
- lágmarkstímabil skuldbindinga neytanda samkvæmt samningnum, eftir því sem við á,
- geymslufé eða aðrar fjárhagslegar tryggingar sem neytanda ber að greiða eða leggja fram að beiðni seljanda, eftir því sem við á, ásamt skilmálum,
- virkni stafræns efnis, þ.m.t. viðeigandi tæknilegar verndarráðstafanir, eftir því sem við á,
- viðeigandi rekstrarsamhæfi stafræns efnis við vélbúnað og hugbúnað sem seljandi hefur vitneskju um eða með réttu má gera ráð fyrir að hann hafi vitneskju um, eftir því sem við á,
- hvort fyrir hendi er kerfi fyrir kvartanir og úrlausn mála utan dómstóla sem seljandi fellur undir og, ef svo er, hvernig aðgangur fæst að því.
Upplýsingar
sem
getið
er
um
í
1.
mgr.
skulu
vera
skýrar
og
greinargóðar
og
vera
aðgengilegar
neytanda.
Ef
um
opinbert
uppboð
er
að
ræða
má
skipta
upplýsingunum
sem
um
getur
í
b-,
c-
og
d-lið
1.
mgr.
út
fyrir
samsvarandi
upplýsingar
um
uppboðshaldara.
Þegar
gerður
er
samningur
utan
fastrar
starfsstöðvar
eða
fjarsölu
sem
lög
þessi
taka
til
er
beint
að
íslenskum
neytendum
eða
markaðssókn
seljanda
fer
að
öðru
leyti
fram
á
Íslandi
og
á
íslensku
ber
að
veita
neytanda
upplýsingar
samkvæmt
ákvæðum
laga
þessara
á
íslensku.
Seljandi
telst
hafa
uppfyllt
upplýsingaskyldu
sína
skv.
h-,
i-
og
j-lið
1.
mgr.
ef
hann
veitir
neytanda
þær
á
rétt
útfylltu
stöðluðu
eyðublaði.
6. gr. Frekari kröfur til upplýsingaskyldu.
Upplýsingar
skv.
5.
gr.
skulu
vera
óaðskiljanlegur
hluti
samnings
utan
fastrar
starfsstöðvar
eða
fjarsölusamnings
og
skal
þeim
ekki
breytt
nema
neytandi
og
seljandi
samþykki
annað
sérstaklega.
Á
seljanda
hvílir
sönnunarbyrði
um
að
farið
sé
að
kröfum
laga
þessara
um
upplýsingagjöf.
Hafi
seljandi
ekki
veitt
neytanda
upplýsingar
um
viðbótargjöld
eða
annan
kostnað
sem
um
getur
í
d-lið
1.
mgr.
5.
gr.,
eða
um
kostnað
sem
hlýst
af
því
að
skila
vörum
sem
um
getur
í
h-lið
1.
mgr.
5.
gr.,
skal
neytandi
ekki
bera
þessi
gjöld
eða
kostnað.
IV. KAFLI Sérstakar kröfur til samninga utan fastrar starfsstöðvar.
7. gr. Upplýsingagjöf vegna samninga utan fastrar starfsstöðvar.
Seljandi skal veita upplýsingar skv. 1. mgr. 5. gr. á pappír eða, með samþykki neytanda, á öðrum varanlegum miðli. Upplýsingarnar skulu vera læsilegar og á skýru og skiljanlegu máli.
8. gr. Undirritað eintak eða staðfesting á samningi.
Seljandi skal láta neytanda í té undirritað eintak af samningnum eða staðfestingu á samningnum á pappír eða, með samþykki neytanda, á öðrum varanlegum miðli, þ.m.t., eftir því sem við á, staðfestingu á ótvíræðu fyrirframsamþykki neytanda og viðurkenningu hans skv. m-lið 18. gr.
9. gr. Veiting þjónustu hefst á meðan frestur til að falla frá samningi varir.
Óski neytandi eftir því að seljandi veiti þjónustu sína áður en frestur til að falla frá samningi er liðinn skal seljandi óska eftir ótvíræðri beiðni þar um á varanlegum miðli.
V. KAFLI Sérstakar kröfur til fjarsölusamninga.
10. gr. Upplýsingagjöf vegna fjarsölusamninga.
Seljandi skal veita upplýsingar skv. 1. mgr. 5. gr. eða gera þær aðgengilegar neytanda með aðferðum sem henta þeim fjarskiptaaðferðum sem eru notaðar á skýru og skiljanlegu máli. Upplýsingarnar skulu vera læsilegar, svo fremi að þær séu veittar á varanlegum miðli.
11. gr. Takmörkun á upplýsingagjöf.
Ef
fjarskiptaaðferð
veitir
takmarkað
rými
eða
tíma
til
að
veita
upplýsingar
skv.
1.
mgr.
5.
gr.
áður
en
gengið
er
frá
samningi
skal
seljandi
a.m.k.
veita
upplýsingar
skv.
a-,
b-,
d-,
g-
og
n-lið
1.
mgr.
5.
gr.
Seljandi
skal
láta
neytanda
í
té
aðrar
upplýsingar,
sem
um
getur
í
1.
mgr.
5.
gr.,
á
viðeigandi
hátt
í
samræmi
við
10.
gr.
Seljanda
í
símasölu
er
skylt
að
taka
hverju
sinni
fram
nafn
sitt
og
nafn
þess
sem
hringt
er
fyrir,
ef
við
á,
og
skal
neytanda
þegar
í
upphafi
samtalsins
gerð
grein
fyrir
því
að
samtalið
fari
fram
í
viðskiptalegum
tilgangi.
12. gr. Gerð fjarsölusamninga með rafrænum hætti.
Ef
samningur,
sem
gera
á
rafrænt,
felur
í
sér
greiðsluskyldu
neytanda
skal
seljandi,
á
skýran
og
auðskiljanlegan
hátt
og
rétt
áður
en
neytandi
leggur
fram
pöntun,
vekja
athygli
hans
á
upplýsingum
skv.
a-,
d-,
n-
og
o-lið
1.
mgr.
5.
gr.
Þegar
neytandi
leggur
fram
pöntun
skal
seljandi
sjá
til
þess
að
neytandi
viðurkenni
afdráttarlaust
að
pöntunin
hafi
greiðsluskyldu
í
för
með
sér.
Sé
pöntun
gerð
með
því
að
virkja
hnapp
eða
með
svipaðri
aðgerð
skal
merkja
hnappinn
eða
aðgerðina
á
auðlæsilegan
hátt
eingöngu
með
ótvíræðu
orðalagi
sem
gefur
til
kynna
að
pöntunin
feli
í
sér
skuldbindingu
um
að
greiða
seljandanum.
Hafi
seljandi
ekki
farið
að
ákvæðum
2.
mgr.
skal
neytandi
ekki
vera
bundinn
af
samningi
eða
pöntun.
13. gr. Takmarkanir á afhendingu og upplýsingar um greiðslumiðil.
Á söluvefsíðu skal tilgreint á skýran og læsilegan hátt, í síðasta lagi við upphaf pöntunarferlisins, hvort um einhverjar takmarkanir á afhendingu er að ræða og hvaða greiðslumiðill er viðurkenndur.
14. gr. Staðfesting á samningi.
Seljandi
skal
láta
neytanda
í
té
staðfestingu
á
samningnum
á
varanlegum
miðli
innan
hæfilegs
frests
frá
því
að
gengið
var
frá
samningnum
og
eigi
síðar
en
á
þeim
tíma
þegar
varan
er
afhent
eða
áður
en
veiting
þjónustu
hefst.
Staðfesting
skv.
1.
mgr.
skal
innihalda
allar
upplýsingar
sem
um
getur
í
1.
mgr.
5.
gr.,
nema
seljandi
hafi
þegar
látið
neytanda
í
té
þessar
upplýsingar
á
varanlegum
miðli
áður
en
gengið
var
frá
samningnum
og,
ef
við
á,
staðfestingu
á
ótvíræðu
fyrirframsamþykki
neytanda
og
viðurkenningu
hans
í
samræmi
við
m-lið
18.
gr.
15. gr. Veiting þjónustu hefst á meðan frestur til að falla frá samningi varir.
Óski neytandi eftir að veiting þjónustu hefjist á meðan fresturinn til að falla frá samningi varir, skal seljandi óska eftir að neytandinn leggi fram ótvíræða beiðni þar um.
VI. KAFLI Réttur til að falla frá samningi.
16. gr. Réttur til að falla frá samningi.
Neytandi
hefur
fjórtán
daga
frest
til
að
falla
frá
samningi
utan
fastrar
starfsstöðvar
eða
fjarsölusamningi
með
tilkynningu
til
seljanda.
Neytandi
þarf
ekki
að
tilgreina
neina
ástæðu
fyrir
ákvörðun
sinni
um
að
falla
frá
samningi
og
skal
ekki
bera
neinn
kostnað
annan
en
þann
sem
kveðið
er
á
um
í
3.
mgr.
21.
gr.,
22.
gr.
og
23.
gr.
laga
þessara.
Á
neytanda
hvílir
sönnunarbyrði
um
að
seljanda
hafi
verið
tilkynnt
um
ákvörðun
um
að
falla
frá
samningi.
17. gr. Frestur til að falla frá samningi.
Frestur til að falla frá samningi rennur út fjórtán dögum eftir að gengið var frá samningi um kaup á þjónustu eða neytandi tók vöru í sína vörslu, eða:
- þegar neytandi pantar margar vörur í einni pöntun en þær eru afhentar hver um sig, fjórtán dögum eftir þann dag þegar neytandi hefur tekið vöruna í sína vörslu í reynd,
- þegar vörur eru afhentar í mörgum einingum eða stykkjum, fjórtán dögum eftir þann dag þegar neytandi hefur tekið síðustu eininguna eða stykkið í sína vörslu,
- ef um er að ræða samninga um reglulega afhendingu á vörum á tilteknu tímabili, fjórtán dögum eftir þann dag þegar neytandi hefur tekið fyrstu vöruna í sína vörslu.
Afhending
skv.
1.
mgr.
telst
hafa
farið
fram
ef
þriðji
aðili
sem
neytandi
tilnefnir
tekur
vöru
í
sína
vörslu.
Hafi
seljandi
ekki
látið
neytanda
í
té
upplýsingar
um
rétt
til
að
falla
frá
samningi,
eins
og
krafist
er
í
g-lið
1.
mgr.
5.
gr.,
skal
réttur
til
að
falla
frá
samningi
renna
út
12
mánuðum
eftir
að
upphaflega
frestinum
til
að
falla
frá
honum
lýkur,
sbr.
1.
mgr.
Hafi
seljandi
látið
neytanda
í
té
upplýsingar
sem
kveðið
er
á
um
í
3.
mgr.
innan
tólf
mánaða
frá
deginum
sem
um
getur
í
1.
mgr.
skal
réttur
til
að
falla
frá
samningi
renna
út
fjórtán
dögum
eftir
daginn
þegar
neytandi
fær
þær
upplýsingar.
18. gr. Undantekningar frá rétti til að falla frá samningi.
Réttur neytanda til að falla frá samningi tekur ekki til eftirtalinna tilvika:
- samninga um kaup á þjónustu eftir að seljandi hefur veitt þjónustuna að fullu enda liggi fyrir ótvírætt fyrirframsamþykki neytanda og viðurkenning á að hann muni missa rétt sinn til að falla frá samningi þegar seljandi hefur efnt samninginn að fullu,
- afhendingar á vöru eða veitingar þjónustu sem er, að því er varðar verðlag, háð sveiflum á fjármálamarkaðinum sem seljandinn hefur ekki stjórn á og sem geta orðið áður en frestur til að falla frá samningi rennur út,
- afhendingar á vöru sem er framleidd samkvæmt forskrift neytandans eða ber skýrt auðkenni hans,
- afhendingar á vöru sem líklegt er að rýrni eða úreldist fljótt,
- afhendingar á innsiglaðri vöru sem er ekki hægt að skila vegna lýðheilsusjónarmiða eða af hreinlætisástæðum hafi innsigli verið rofið eftir afhendingu,
- afhendingar á vöru sem eðlis síns vegna er ekki unnt að aðskilja frá öðrum vörum eftir afhendingu,
- afhendingar á áfengum drykkjum sem samið hefur verið um verð á þegar gengið var frá samningi og ekki er unnt að afhenda fyrr en 30 dögum síðar og þar sem verðgildið er háð sveiflum á markaði sem seljandinn hefur ekki stjórn á,
- samninga þar sem neytandinn hefur sérstaklega óskað eftir að seljandinn komi til hans til þess að sinna áríðandi viðgerðum eða viðhaldi; ef seljandinn veitir þjónustu umfram það sem neytandinn hefur sérstaklega óskað eftir eða afhendir vöru aðra en varahluti sem eru nauðsynlegir fyrir viðhaldið eða viðgerðirnar skal réttur til að falla frá samningi gilda um þessa viðbótarþjónustu eða vöru,
- afhendingar á innsigluðum hljóð- eða myndupptökum eða tölvuhugbúnaði sem neytandinn hefur rofið innsiglið á eftir afhendingu,
- afhendingar á dagblöðum eða tímaritum að undanskildum áskriftarsamningum um afhendingu á slíku efni,
- samninga sem eru gerðir á opinberu uppboði,
- veitingar þjónustu í tengslum við húsnæði sem ekki er til íbúðarnota, vöruflutninga, bílaleigu, matsölu- eða tómstundaþjónustu sé gert ráð fyrir í samningnum að þjónustan sé veitt á tilteknum degi eða tilteknu tímabili,
- afhendingar á stafrænu efni sem er ekki afhent á áþreifanlegum miðli ef afhending hefur hafist með ótvíræðu fyrirframsamþykki neytandans og viðurkenningu á að hann muni þar með missa rétt sinn til að falla frá samningi.
19. gr. Neytandi fellur frá samningi.
Neytandi
skal
tilkynna
seljanda
um
ákvörðun
sína
um
að
falla
frá
samningi
áður
en
fresturinn
til
að
falla
frá
honum
rennur
út.
Neytandi
telst
hafa
tilkynnt
seljanda
um
ákvörðun
sína
ef
tilkynning
er
send
áður
en
fresturinn
rennur
út.
Neytandi
getur
tilkynnt
seljanda
um
ákvörðun
sína
með
því
að
nota
samræmt
staðlað
uppsagnareyðublað,
sbr.
g-lið
5.
gr.,
eða
með
annari
ótvíræðri
yfirlýsingu.
Seljandi
sem
gefur
neytanda
kost
á
að
fylla
út
og
senda
rafrænt
staðlað
uppsagnareyðublað
eða
aðra
ótvíræða
yfirlýsingu
á
vefsvæði
sínu
skal
án
tafar
láta
neytandanum
í
té
kvittun
fyrir
móttöku
uppsagnar
á
varanlegum
miðli.
Sönnunarbyrði
um
að
réttur
til
að
falla
frá
samningi
sé
nýttur
í
samræmi
við
ákvæði
þessarar
greinar
hvílir
á
neytanda.
20. gr. Áhrif uppsagnar.
Ef neytandi nýtir rétt sinn til að falla frá samningi falla niður skuldbindingar samningsaðila um að efna samning utan fastrar starfsstöðvar eða fjarsölusamning eða ganga frá samningi utan fastrar starfsstöðvar eða fjarsölusamningi í þeim tilvikum þegar neytandi hefur gert tilboð.
21. gr. Skyldur seljanda ef fallið er frá samningi.
Seljandi
skal
endurgreiða
neytanda
allar
greiðslur
sem
hann
innti
af
hendi,
þar
á
meðal
sendingarkostnað,
ef
við
á,
án
ástæðulausrar
tafar
og
eigi
síðar
en
fjórtán
dögum
eftir
þann
dag
þegar
honum
er
tilkynnt
um
ákvörðun
neytandans
um
að
falla
frá
samningnum
í
samræmi
við
19.
gr.
laga
þessara.
Seljandi
skal
inna
af
hendi
endurgreiðslu,
sem
um
getur
í
1.
mgr.,
með
því
að
nota
sama
greiðslumiðil
og
neytandinn
notaði
fyrir
upphaflegu
viðskiptin
nema
neytandi
hafi
samþykkt
annað
sérstaklega
og
að
því
tilskildu
að
neytandi
beri
ekki
neinn
kostnað
af
slíkri
endurgreiðslu.
Þrátt
fyrir
ákvæði
1.
mgr.
skal
seljanda
ekki
vera
skylt
að
endurgreiða
viðbótarkostnað
ef
neytandi
hefur
óskað
sérstaklega
eftir
öðrum
afhendingarmáta
en
ódýrasta
afhendingarmáta
sem
seljandi
bauð.
Hafi
seljandi
ekki
boðist
til
að
sækja
vörurnar
sjálfur
þegar
um
er
að
ræða
sölusamninga
getur
hann
haldið
eftir
endurgreiðslu
þar
til
hann
hefur
fengið
vörurnar
aftur
eða
þar
til
neytandi
hefur
lagt
fram
sönnun
fyrir
endursendingu
þeirra,
hvort
sem
kemur
á
undan.
22. gr. Skyldur neytanda ef fallið er frá samningi um afhendingu vöru.
Hafi
seljandi
ekki
boðist
til
að
sækja
vöru
sjálfur
skal
neytandi
endursenda
hana
eða
afhenda
seljanda
eða
fulltrúa
hans
án
ástæðulausrar
tafar
og
eigi
síðar
en
fjórtán
dögum
eftir
þann
dag
þegar
hann
tilkynnti
seljanda
um
ákvörðun
sína
um
að
falla
frá
samningi,
sbr.
19.
gr.
Fresturinn
skal
teljast
virtur
ef
neytandi
endursendir
vöruna
fyrir
lok
fjórtán
daga
tímabilsins.
Neytandi
skal
bera
beinan
kostnað
af
því
að
skila
vöru
nema
seljandi
hafi
samþykkt
að
bera
hann
eða
seljandi
hefur
ekki
upplýst
neytanda
um
að
hann
skuli
bera
þennan
kostnað.
Ef
um
er
að
ræða
samning
utan
fastrar
starfsstöðvar
og
varan
var
send
heim
til
neytanda
þegar
gengið
var
frá
samningnum
skal
seljandi
sækja
vöruna
á
eigin
kostnað
ef
hún
er
þannig
að
ekki
er
hægt
að
endursenda
hana
í
pósti.
Neytandi
skal
vera
ábyrgur
fyrir
þeirri
rýrnun
á
verðgildi
vöru
sem
stafar
af
meðferð
vörunnar,
annarrar
en
þeirrar
sem
nauðsynleg
er
til
að
staðfesta
eiginleika,
einkenni
og
virkni
hennar.
Neytandi
skal
ekki
undir
neinum
kringumstæðum
vera
ábyrgur
fyrir
rýrnun
á
verðgildi
vöru
ef
seljandi
hefur
ekki
tilkynnt
honum
um
réttinn
til
að
falla
frá
samningi
í
samræmi
við
g-lið
1.
mgr.
5.
gr.
23. gr. Skyldur neytanda ef fallið er frá samningi um veitingu þjónustu.
Þegar
neytandi
fellur
frá
samningi,
eftir
að
hafa
óskað
eftir
að
veiting
þjónustu
hefjist,
skal
neytandi
greiða
seljanda
hlutfall
af
heildarverði
samnings
í
samræmi
við
það
sem
hefur
verið
afgreitt
fram
að
þeim
tíma
þegar
neytandi
tilkynnir
seljanda
um
að
hann
falli
frá
samningi.
Ef
heildarverð
er
talið
óhóflegt
skal
greiðsla
reiknuð
út
á
grundvelli
markaðsvirðis
þess
sem
var
afgreitt.
Neytandi
skal
ekki
bera
kostnað
af
veitingu
þjónustu
áður
en
frestur
til
að
falla
frá
samningi
rennur
út
ef:
- seljandi hefur ekki veitt upplýsingar í samræmi við h- eða i-lið 1. mgr. 5. gr.,
- neytandi hefur ekki óskað sérstaklega eftir að veiting þjónustu hefjist áður en frestur til að falla frá samningi rennur út,
- neytandi hefur ekki veitt ótvírætt fyrirframsamþykki sitt fyrir því að afhending á stafrænu efni, að öllu leyti eða hluta, fari fram áður en frestur til að falla frá samningi rennur út, neytandi hefur ekki viðurkennt að hann missi rétt sinn til að falla frá samningi með því að veita samþykki sitt eða seljandi hefur ekki gefið staðfestingu í samræmi við 8. og 14. gr.
Neytandi skal ekki bera neina ábyrgð sem nýting réttar til að falla frá samningi gæti haft í för með sér að undanskildu því sem fram kemur í 3. mgr. 21. gr. og þessari grein.
24. gr. Áhrif þess að fallið er frá samningi á fylgisamninga.
Þegar
neytandi
nýtir
rétt
sinn
til
að
falla
frá
samningi
skal
öllum
fylgisamningum
sjálfkrafa
sagt
upp
neytanda
að
kostnaðarlausu
sé
ekki
kveðið
á
um
annað
í
3.
mgr.
21.
gr.,
22.
og
23.
gr.
Þegar
neytandi
tilkynnir
seljanda
um
að
hann
nýti
rétt
sinn
til
að
falla
frá
samningi
skal
seljandi
án
ástæðulauss
dráttar
tilkynna
það
þriðja
aðila
sem
hefur
gert
fylgisamning
við
neytanda
vegna
samnings
utan
fastrar
starfsstöðvar
eða
fjarsölusamnings.
VII. KAFLI Önnur ákvæði.
25. gr. Ágengar söluaðferðir.
Óheimilt
er
að
senda
neytanda
vöru
eða
veita
þjónustu
sem
greiða
á
fyrir
hafi
hann
ekki
pantað
vöruna
eða
þjónustuna.
Þegjandi
samþykki
neytanda
þegar
söluaðferðum
er
beitt
skv.
1.
mgr.
er
ávallt
ógilt.
26. gr. Viðbótargjöld.
Seljanda
sem
gefur
upp
símanúmer
svo
að
neytandi
geti
haft
samband
við
hann
í
tengslum
við
samning
sem
gerður
hefur
verið
er
óheimilt
að
krefja
neytanda
um
frekari
greiðslur
en
nemur
grunngjaldi.
Áður
en
neytandi
er
bundinn
samningi
eða
tilboði
skal
seljandi
óska
eftir
ótvíræðu
samþykki
neytanda
fyrir
hvers
konar
viðbótargreiðslum
umfram
greiðsluna
sem
samþykkt
var
fyrir
samningsbundna
meginskyldu
seljandans.
Ef
seljandi
hefur
ekki
fengið
ótvírætt
samþykki
neytanda
en
hefur
gert
ráð
fyrir
því
með
því
að
nota
sjálfgefna
kosti
sem
neytandi
þarf
að
hafna
til
þess
að
forðast
viðbótargreiðsluna
skal
neytandi
eiga
rétt
á
að
fá
hana
endurgreidda.
VIII. KAFLI Gildistaka o.fl.
27. gr. Eftirlit og ákvarðanir Neytendastofu.
Neytendastofa
annast
eftirlit
með
ákvæðum
laga
þessara
og
reglna
settra
á
grundvelli
þeirra.
Ákvæði
laga
um
eftirlit
með
viðskiptaháttum
og
markaðssetningu
gilda
um
málsmeðferð
Neytendastofu.
Ákvæði
VIII.
kafla
laga
um
eftirlit
með
viðskiptaháttum
og
markaðssetningu,
nr.
57/2005,
gilda
um
heimildir
Neytendastofu
til
upplýsingaöflunar,
haldlagningar
gagna
og
afhendingar
upplýsinga
til
stjórnvalda
annarra
ríkja
og
um
þagnarskyldu.
Neytendastofa
getur
gripið
til
aðgerða
gegn
aðilum
sem
brjóta
gegn
ákvæðum
laganna,
eftir
því
sem
við
getur
átt.
Aðgerðir
Neytendastofu
geta
falið
í
sér
bann,
fyrirmæli
eða
heimild
með
ákveðnu
skilyrði.
Ákvörðun
Neytendastofu
verður
ekki
borin
undir
dómstóla
fyrr
en
úrskurður
áfrýjunarnefndar
neytendamála
liggur
fyrir.
Við
afgreiðslu
mála
samkvæmt
lögum
þessum
er
Neytendastofu
heimilt
að
raða
málum
í
forgangsröð.
Nú
vill
aðili
ekki
una
úrskurði
áfrýjunarnefndar
neytendamála
og
getur
hann
þá
höfðað
mál
til
ógildingar
fyrir
dómstólum.
Mál
skal
höfðað
innan
sex
mánaða
frá
því
að
aðili
fékk
vitneskju
um
úrskurð
áfrýjunarnefndar.
Málshöfðun
frestar
ekki
gildistöku
úrskurðar
nefndarinnar
né
heimild
til
aðfarar.
28. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd þessara laga, þar á meðal um framkvæmd upplýsingaskyldu seljanda, m.a. með birtingu samræmdra og staðlaðra skjala.
29. gr. Viðurlög og úrræði.
Neytendastofa
getur
lagt
stjórnvaldssektir
á
aðila
sem
brýtur
gegn
ákvæðum
laga
þessara,
og
eftir
atvikum
reglum
settum
á
grundvelli
þeirra,
eða
ákvörðunum
Neytendastofu.
Stjórnvaldssektir
sem
lagðar
eru
á
aðila
geta
numið
100
þús.
kr.
til
10
millj.
kr.
Ákvarðanir
um
stjórnvaldssektir
teknar
af
Neytendastofu
eru
aðfararhæfar.
Sektir
renna
í
ríkissjóð
að
frádregnum
kostnaði
við
innheimtuna.
Séu
stjórnvaldssektir
ekki
greiddar
innan
mánaðar
frá
ákvörðun
Neytendastofu
skal
greiða
dráttarvexti
af
fjárhæð
sektarinnar.
Um
ákvörðun
og
útreikning
dráttarvaxta
fer
eftir
lögum
um
vexti
og
verðtryggingu.
Stjórnvaldssektum
verður
beitt
óháð
því
hvort
lögbrot
eru
framin
af
ásetningi
eða
gáleysi.
Ef
ekki
er
farið
að
ákvörðun
sem
tekin
hefur
verið
samkvæmt
lögum
þessum
getur
Neytendastofa
ákveðið
að
sá
eða
þeir
sem
ákvörðunin
beinist
að
greiði
dagsektir
þar
til
farið
verður
að
henni.
Ákvörðun
um
dagsektir
skal
tilkynnt
bréflega
á
sannanlegan
hátt
þeim
sem
hún
beinist
að.
Ákvörðun
um
dagsektir
má
skjóta
til
áfrýjunarnefndar
neytendamála
innan
fjórtán
daga
frá
því
að
hún
er
kynnt
þeim
er
hún
beinist
að.
Dagsektir
reiknast
ekki
fyrr
en
frestur
er
liðinn.
Ef
ákvörðun
er
skotið
til
áfrýjunarnefndar
neytendamála
falla
dagsektir
ekki
á
fyrr
en
niðurstaða
hennar
liggur
fyrir.
30. gr. Innleiðing á tilskipun.
Lög þessi eru sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/83/ESB frá 25. október 2011, um réttindi neytenda, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2012, um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn, sem birt var í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70/2012.
31. gr. Gildistaka.
Lög
þessi
öðlast
þegar
gildi.
Við
gildistöku
þeirra
falla
brott
lög
nr.
46/2000,
um
húsgöngu-
og
fjarsölusamninga,
með
síðari
breytingum.
32. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, með síðari breytingum:
-
1.
mgr.
6.
gr.
laganna
orðast
svo:
Hafi samningsaðilar ekki komið sér saman um annað skal seljandi afhenda vöruna eða umráð yfir henni til neytanda án ástæðulausrar tafar, þó ekki síðar en 30 dögum eftir að gengið var frá samningi. -
Á
eftir
3.
mgr.
14.
gr.
laganna
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Í samningum þar sem seljandi sendir neytanda vöru skal áhættan af því að varan týnist eða skemmist færast til neytandans þegar hann eða þriðji aðili sem neytandi hefur tilgreint, annar en flutningsaðilinn, hefur tekið vöruna í sína vörslu. Áhættan skal þó færast yfir til neytandans þegar varan er afhent flutningsaðila ef neytandinn hefur fengið hann til að flytja vöruna og sá kostur var ekki í boði hjá seljandanum, með fyrirvara um réttindi neytandans gagnvart flutningsaðilanum. -
23.
gr.
laganna
orðast
svo:
Hafi seljandi ekki afhent hlut á þeim tíma sem seljandi og neytandi gerðu samkomulag um eða innan tímamarka skv. 1. mgr. 6. gr., skal neytandi fara þess á leit við seljanda að hann afhendi hlutinn innan viðbótarfrests. Nú afhendir seljandi ekki hlutinn innan viðbótarfrests og getur neytandi þá rift kaupum.
Ákvæði 1. mgr. gildir ekki ef seljandi hefur neitað að afhenda hlut eða ef afhending hlutarins innan umsamins frests er nauðsynleg forsenda samningsgerðar með tilliti til allra aðstæðna eða ef neytandi upplýsir seljanda um áður en gengið er frá samningi að nauðsynlegt sé að afhenda hlut á tilteknum degi eða fyrir þann dag. Í slíkum tilvikum, ef seljandi afhendir ekki hlutinn á þeim tíma sem samið var um við neytanda eða innan tímamarka sem tilgreind eru í 1. mgr., skal neytandinn eiga rétt á að rifta samningi þegar í stað.
Gjört á Bessastöðum, 23. mars 2016.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Ólöf Nordal.
A deild - Útgáfud.: 31. mars 2016