Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Vestmannaeyjabær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Vestmannaeyjar

Undirritunardagur

12. ágúst 2026

Útgáfudagur

13. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 892/2026

12. ágúst 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Vestmannaeyjabæ.

Breytt deiliskipulag í Viðlagafjöru vegna stækkunar svæðisins og aukinnar framleiðslu.

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á 1628. fundi sínum 1. júlí 2026 að staðfesta tillögu að breyttu deiliskipulagi Viðlagafjöru.

Laxey ehf. áformar að auka umfang framleiðslugetu úr 11.500 tonnum í 42.000 tonn á ári ásamt áformum um að reisa seiðaeldisstöð í Viðlagafjöru. Meginmarkmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að skapa aukið rými fyrir landeldi á svæðinu.

Í gildandi deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Viðlagafjöru eru skilgreindar tvær lóðir og er uppbygging á annarri þeirra, lóð 1, langt á veg komin. Tillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir nýrri lóð, lóð 3, nyrst á svæðinu þar sem gert verður ráð fyrir seiðaeldisstöð allt að 15.000 m² að gólffleti. Gert er ráð fyrir mön umhverfis lóðina við Eldfellsveg og að lega vegslóða að Viðlagafjöru frá norðri breytist.

Gert er ráð fyrir að mörk milli lóða 1 og 2 í Viðlagafjöru breytist. Einnig er gert ráð fyrir að lóð nr. 1 stækki og að heildar gólfflötur mannvirkja aukist og verði að hámarki allt að 71.000 m². Á lóð 2 var áður gert ráð fyrir geymslu jarðefna en þar er nú skilgreindur byggingarreitur með heildar gólffleti mannvirkja allt að 25.000 m².

Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð samkvæmt ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Vestmannaeyjum, 12. ágúst 2026.

F.h. bæjarstjórnar Vestmannaeyja,

Dagný Hauksdóttir, skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 13. ágúst 2026

Tengd mál