Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands

Málaflokkur

Árnessýsla, Heilbrigðiseftirlit, Matvæli, Umhverfismál, Rangárvallasýsla, Sveitarfélagið Árborg, Skaftafellssýslur, Hveragerði, Sveitarfélagið Ölfus

Undirritunardagur

10. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1468/2025

10. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Suðurlands samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, og lögum um matvæli, nr. 93/1995. Einnig er heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari vegna þjónustu heilbrigðiseftirlitsins skv. ofannefndum lögum. Sama gildir um starfsemi sem háð er eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands skv. sérstökum samningum um framsal eftirlits með einstökum fyrirtækjaflokkum frá Umhverfis- og orkustofnun eða frá Matvælastofnun til heilbrigðisnefndar.

2. gr.

Tímagjald 22.006 kr.

Gjald vegna rannsóknar pr. sýni í eftirlitsáætlun skv. útlögðum kostnaði.

Af eftirlitsskyldri starfsemi er heimilt að innheimta árlegt gjald eins og fram kemur í viðauka sem auglýstur er sérstaklega sem fylgiskjal með gjaldskrá þessari. Þar kemur jafnframt fram áætluð tíðni eftirlits.

Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða að öðru leyti takmörkuð með svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka eftirlitsgjaldið og að sama skapi taka aukalega gjald sé eftirlitið umfangsmeira en gjaldflokkur segir til um.

Unnt er að sækja um lækkun gjalda ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu, hefur rekið vottað gæðakerfi eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni sem heilbrigðisnefnd telur ganga lengra en reglur kveða á um. Ef heilbrigðisnefnd fellst á slíka lækkun er henni heimilt að draga úr eftirliti frá sama tíma.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa, á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald. Þá er áætlaður tími fyrir hvern fyrirtækjaflokk lagður saman en einungis eitt akstursgjald tekið enda eftirlitsferð samnýtt.

Af starfsemi sem er hvorki starfsleyfis- né skráningarskyld með vísun í 54. gr. a í lögum nr. 7/1998 er heimilt að taka gjald skv. útlögðum kostnaði.

3. gr.

Af starfsleyfis- og/eða skráningarskyldri starfsemi, er heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi, skráningu og þjónustu eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:  
  Starfsleyfisgjald 1,5 tímagjald
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,  
  úttektar og frágangs ásamt auglýsingakostnaði ef við á  
Ný starfsemi:  
  Starfsleyfisgjald/skráningargjald 2,0 tímagjöld
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,  
  og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks  
  ásamt auglýsingakostnaði ef við á  
Önnur leyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun s.s. tóbaksöluleyfi:  
  Starfsleyfisgjald 2,0 tímagjöld
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,  
  úttektar og frágangs, ásamt auglýsingakostnaði ef við á.  
Fyrir húsnæðis- og skipaskoðun 4,0 tímagjöld

Starfsemi sem er eftirlitsskyld en er ekki á lista í viðauka greiðir eftirlitsgjald eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 30 dögum eftir útgáfudag leyfis.

Heimilt er að semja um annað fyrirkomulag óski rekstraraðilar eftir og skal það þá gert skriflega.

5. gr.

Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum greiðist hálft tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

Verk sem unnin eru skv. ákvæðum samþykkta settum samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, eru gjaldfærð eins og um þjónustuverkefni sé að ræða nema um annað hafi verið samið.

Eftirfylgniferðir og úttektir umfram það sem innifalið er í eftirlitsgjaldi greiðast skv. tímagjaldi viðkomandi fyrirtækjaflokks.

6. gr.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands innheimtir öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, fylgiskjal sem birt er með gjaldskránni.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 46. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni er heimilt að innheimta með fjárnámi skv. ofangreindri grein. Jafnframt er vísað í 7. gr. í samþykkt fyrir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs., nr. 1270/2021.

7. gr.

Gjalddagi árlegra eftirlitsgjalda samkvæmt 2. og 3. gr. er 1. mars og eindagi 1. apríl ár hvert en annarra gjalda er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er af heilbrigðisnefnd Suðurlalnds sem jafnframt er stjórn byggðasamlags um Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum á aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 24. október 2025 í samræmi við 46. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, 65. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, 25. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og 8. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 6/2002. Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir matvæla-, heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, nr. 1710/2024.

Selfossi, 10. desember 2025.

F.h. heilbrigðisnefndar Suðurlands,

Sigrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál