Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Ökutæki, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
18. nóvember 2025
Útgáfudagur
2. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1288/2025
18. nóvember 2025
AUGLÝSING
um breytingar á vátryggingarfjárhæðum ökutækjatrygginga.
1. gr.
Með vísan til 6. mgr. 8. gr. laga um ökutækjatryggingar, nr. 30/2019, er ákveðið að hámark vátryggingarfjárhæðar ábyrgðartryggingar ökutækis skv. 5. mgr. 8. gr. sömu laga verði 6.448 millj. kr. vegna líkamstjóns eða missis framfæranda og 599 millj. kr. vegna tjóns á munum.
2. gr.
Með vísan til 4. mgr. 9. gr. laga um ökutækjatryggingar, nr. 30/2019, er ákveðið að hámark vátryggingarfjárhæðar slysatryggingar ökumanns og eiganda skv. 3. mgr. 9. gr. sömu laga verði 484 millj. kr.
3. gr.
Hámark eigin áhættu vátryggingartaka skv. 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 1244/2019 um ökutækjatryggingar, er 695.000 kr. fyrir einstakling og 3.475.000 kr. fyrir rekstraraðila. Hámark eigin áhættu í iðgjaldagrundvelli skv. 3. málsl. 2. mgr. 4. gr. sömu reglugerðar er 174.000 kr.
4. gr.
Auglýsing þessi tekur þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi auglýsing um breytingar á vátryggingarfjárhæðum ökutækjatrygginga, nr. 1481/2024.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 18. nóvember 2025.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Páll Friðriksson.
B deild — Útgáfudagur: 2. desember 2025