Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Umferðarmál, Ökutæki
Undirritunardagur
21. september 2026
Útgáfudagur
5. október 2026
Leiðréttingar
6. október 2026
Í stað „… um breytingu á reglugerð nr. 751/2023 …“ í heiti reglugerðarinnar við útgáfu, komi: … um breytingu á reglugerð nr. 751/2003 …
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1053/2026
21. september 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 751/2003 um skráningu ökutækja.
1. gr.
Í stað orðanna „að undanskildum d-lið“ í 4. málsl. 7. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar kemur: að undanskildum d- og e-lið.
2. gr.
Á eftir d-lið 2. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar kemur nýr liður, e-liður, sem orðast svo: Á skráningarmerkjum leigubifreiðar, skulu brúnir, stafir og bandstrik vera svört. Flötur skal vera gulur.
3. gr.
Á eftir orðunum „2. mgr. 19. gr.“ í 1. mgr. 26. gr. reglugerðarinnar, kemur: utan leigubifreiða.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 72. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 öðlast gildi 1. apríl 2027.
Innviðaráðuneytinu, 21. september 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 5. október 2026