Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

22. desember 2025

Útgáfudagur

30. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1521/2025

22. desember 2025

AUGLÝSING

um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, persónuafslátt og skattfrelsismark erfðafjárskatts árið 2026.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2026 verður 16,55% af tekjuskattsstofni að 5.977.470 kr., 23,05% af tekjuskattsstofni frá 5.977.471 kr. að 16.781.397 kr. og 31,35% af tekjuskattsstofni frá 16.781.398 kr. Meðalútsvar á árinu 2026 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,94%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2026 verður því 31,49% af tekjuskattsstofni að 5.977.470 kr., eða að 498.122 kr. að meðaltali á mánuði, 37,99% af tekjuskattsstofni frá 5.977.471 kr. að 16.781.397 kr., eða frá 498.123 kr. að 1.398.450 kr. að meðaltali á mánuði og 46,29% af tekjuskattsstofni frá 16.781.398 kr., eða frá 1.398.451 kr. að meðaltali á mánuði.

Samkvæmt A-lið 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2026 vera 869.898 kr., eða 72.492 kr. að meðaltali á mánuði.

Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laga um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, skal skattfrelsismark erfðafjárskatts í skattstofni dánarbús á árinu 2026 vera 6.789.790 kr.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2025.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025

Tengd mál