Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
20. október 2026
Útgáfudagur
4. nóvember 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1173/2026
20. október 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012.
1. gr.Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.43 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1847 frá 23. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.43.
2.47 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1846 frá 23. júlí 2026 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.47.
2. gr.Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 20. október 2026.
Daði Már Kristófersson.
Martin Eyjólfsson.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/1847
frá 23. júlí 2026
um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 15. október 2012 samþykkti ráðið ákvörðun 2012/642/SSUÖ (1).
2) Hinn 24. febrúar 2022 tilkynnti forseti Rússneska sambandsríkisins um hernaðaraðgerð í Úkraínu og rússneskur herafli hóf árásir á Úkraínu, þ.m.t. frá yfirráðasvæði Belarús. Sú árás var blygðunarlaust brot á landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.
3) Í ályktunum sínum frá 19. febrúar 2024 fordæmdi ráðið harðlega áframhaldandi stuðning stjórnarinnar í Belarús við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og fór fram á að Belarús taki ekki þátt í slíkum aðgerðum og að landið fari að alþjóðlegum skuldbindingum sínum.
4) Í ljósi þess hversu alvarleg staðan er og til að bregðast við áframhaldandi þátttöku Belarús í árásum Rússlands gegn Úkraínu þykir rétt að innleiða viðbótarþvingunaraðgerðir.
5) Einkum þykir rétt að víkka út skrána yfir atriði, sem gætu stuðlað að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða að þróun á sviði varnarmála og öryggismála þess, með því að skrá hluti sem Rússland hefur notað í árásarstríði sínu gegn Úkraínu og hluti sem stuðla að þróun eða framleiðslu á hernaðarkerfum Belarús, þ.m.t. nikkelduft, nikkelmálm og málmblöndur úr nikkel sem eru notaðar í tæringarþolna húðun í þotuhreyflum, beryllíumduft sem er notað í drifefni og í öflugar málmblöndur, sjálflímandi filmur, límbönd og strimla sem eru notaðar í flugvélageiranum og á sviði varnarmála, flugtengdan búnað sem er sértækur fyrir ómönnuð loftför, s.s. stuðningsbúnað á jörðu, kerfi til truflunar eða inngrips, skotbúnað og stýrihreyfla ásamt flugstöðvunarkerfum fyrir ómönnuð loftför eða flugskeyti.
6) Einnig þykir rétt að breyta undanþágunum til að tryggja áfram útvegun vara og þjónustu sem nauðsynlegar eru til að viðhalda grunninnviðum netsins í Belarús fyrir almenning.
7) Auk þess þykir rétt að innleiða frekari takmarkanir á innflutning á vörum sem gera Belarús kleift að auka fjölbreytni tekjulinda sinna og gera því þar með kleift að taka þátt í árásarstríði Rússlands gegn Úkraínu, þ.m.t. takmarkanir á kopargrýti, nikkelgrýti, blýgrýti, góðmálmsgrýti, óunnið sink, alkalíska jarðmálma, tiltekin ólífræn íðefni (sinkoxíð og krómoxíð), furuolíu, glervöru og bílahluta.
8) Einnig þykir rétt að víkka út gildissvið banns við því að ríkisborgarar Belarús eða einstaklingar sem búa í Belarús eigi eða stjórni tilteknum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru skráðar eða löglega stofnaðar samkvæmt lögum aðildarríkis, eða gegni störfum í stjórnum þeirra, þannig að bannið gildi um allar rekstrareiningar sem veita þjónustu á sviði sýndareigna, eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 (2).
9) Því ætti að breyta ákvörðun 2012/642/SSUÖ til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun 2012/642/SSUÖ er breytt sem hér segir:
1) Ákvæðum 1. gr. b er breytt sem hér segir:
a) Ákvæði 3. mgr. d falla brott.
b) Eftirfarandi kemur í stað 14. mgr. a:
„14a. Þrátt fyrir 1. og 3. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara sem falla undir SN-númer 8517 62 og 8523 52 eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar til annarra nota en hernaðarlegra nota og til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð sé ætluð fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet.“
2) Í stað e-liðar 4. mgr. 2. gr. c kemur eftirfarandi:
„e) fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet, sem eru ekki eign rekstrareiningar sem er undir stjórn eða meira en 50% í eigu hins opinbera,“.
3) Í stað e-liðar 4. mgr. 2. gr. d kemur eftirfarandi:
„e) fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet, sem eru ekki eign rekstrareiningar sem er undir stjórn eða meira en 50% í eigu hins opinbera,“.
4) Ákvæðum 2. gr. ra er breytt sem hér segir:
a) Ákvæði 9. mgr. a og 9. mgr. b falla brott.
b) Í stað 9. mgr. c kemur eftirfarandi:
„9c. Frá og með 26. janúar 2026 til 31. desember 2026 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um kaup eða innflutning til Ungverjalands á vörum sem falla undir SN-númer 2901 10 00 og eru upprunnar í eða fluttar út frá Belarús, að því tilskildu að vörurnar séu ætlaðar eingöngu til nota í Ungverjalandi.“
c) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„9f. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númer 3803, 7006, 7008, 7009, 7011, 7013, 7014, 7017, 7018, 7020, 8707 og 8708 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um efndir fram til 25. október 2026 á samningum sem gerðir voru fyrir 24. júlí 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“
5) Í stað 3. mgr. aa í 2. gr. s kemur eftirfarandi:
„3aa. Þrátt fyrir 1. mgr. og með fyrirvara um kröfur um heimild samkvæmt reglugerð (ESB) 2021/821 geta lögbær stjórnvöld heimilað sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vélbúnaði sem fellur undir SN-númer 8471 80 eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar til annarra nota en hernaðarlegra nota og til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, eftir að hafa ákvarðað að slíkur vélbúnaður eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð sé ætluð fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet.“
6) Í stað 1. mgr. b í 2. gr. u kemur eftirfarandi:
„1b. Lagt er bann við því, frá og með 26. mars 2025, að heimila ríkisborgurum Belarús eða einstaklingum með búsetu í Belarús að eiga eða stjórna, með beinum eða óbeinum hætti, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis og veitir þjónustu tengda sýndareignaveski, sýndareignareikningi eða fjárvörslu sýndareigna, eða gegna störfum í stjórnum þeirra. Frá og með 25. ágúst 2026 skal það bann einnig gilda þegar um er að ræða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis og veitir aðra þjónustu á sviði sýndareigna, eins og skilgreint er í reglugerð (ESB) 2023/1114.“
7) Í stað 2. mgr. í 2. gr. w kemur eftirfarandi:
„2. Ákvæði 1. mgr. gilda ekki um ríkisborgara aðildarríkis, ríkisborgara lands sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu eða ríkisborgara Sviss eða um einstaklinga sem hafa tímabundið dvalarleyfi eða búsetuleyfi í aðildarríki, í landi sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu eða í Sviss.“
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 23. júlí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
T. BYRNE
_________________
(1) Ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ frá 15. október 2012 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 285, 17.10.2012, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2012/642/oj).
(2) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (Stjtíð. ESB L 150, 9.6.2023, bls. 40, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2023/1114/oj).
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/1846
frá 23. júlí 2026
um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir
í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1847 frá 23. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 18. maí 2006 samþykkti ráðið reglugerð (EB) nr. 765/2006 (2).
2) Með reglugerð (EB) nr. 765/2006 koma til framkvæmda þær ráðstafanir sem kveðið er á um í ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ (3).
3) Hinn 23. júlí 2026 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/1847 sem breytir ákvörðun 2012/642/SSUÖ.
4) Með framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1816 (4) er fjórum nýjum rekstrareiningum bætt á skrána yfir lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem sett er fram í II. viðauka við ákvörðun 2012/642/SSUÖ sem er skrá yfir aðila, rekstrareiningar og stofnanir sem sæta takmörkunum að því er varðar heimildir til sölu, afhendingar, tilflutnings eða útflutnings á vörum og tækni með tvíþætt notagildi og vörum og tækni sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða Rússlands eða þróun á sviðum varnar- og öryggismála þeirra.
5) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1847 þykir rétt að víkka út skrána yfir atriði, sem gætu stuðlað að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Belarús eða að þróun á sviði varnarmála og öryggismála þess, með því að skrá hluti sem Rússland hefur notað í árásarstríði sínu gegn Úkraínu og hluti sem stuðla að þróun eða framleiðslu á hernaðarkerfum Belarús, þ.m.t. nikkelduft, nikkelmálm og málmblöndur úr nikkel sem eru notaðar í tæringarþolna húðun í þotuhreyflum, beryllíumduft sem er notað í drifefni og í öflugar málmblöndur, sjálflímandi filmur, límbönd og strimla sem eru notuð í flugvélageiranum og á sviði varnarmála, flugtengdan búnað sem er sértækur fyrir ómönnuð loftför, s.s. stuðningsbúnað á jörðu, kerfi til truflunar eða inngrips, skotbúnað og stýrihreyfla og flugstöðvunarkerfi fyrir ómönnuð loftför eða flugskeyti.
6) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1847 er undanþágum breytt til að tryggja áfram útvegun vara og þjónustu sem nauðsynlegar eru til að viðhalda grunninnviðum netsins í Belarús fyrir almenning.
7) Auk þess þykir með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1847 rétt að innleiða frekari takmarkanir á innflutning á vörum sem gera Belarús kleift að auka fjölbreytni tekjulinda sinna og gera því þar með kleift að taka þátt í árásarstríði Rússlands gegn Úkraínu, þ.m.t. takmarkanir á kopargrýti, nikkelgrýti, blýgrýti, góðmálmsgrýti, óunnið sink, alkalíska jarðmálma, tiltekin ólífræn íðefni (sinkoxíð og krómoxíð), furuolíu, glervöru og bílahluta.
8) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1847 er gildissvið banns við því að ríkisborgarar Belarús eða einstaklingar sem búa í Belarús eigi eða stjórni tilteknum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem eru skráðar eða löglega stofnaðar samkvæmt lögum aðildarríkis, eða gegni störfum í stjórnum þeirra, víkkað út þannig að bannið gildi um allar rekstrareiningar sem veita þjónustu á sviði sýndareigna, eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 (5).
9) Með reglugerð ráðsins (ESB) 2026/513 (6) var gildissvið banns í reglugerð (EB) nr. 765/2006 við því að efna kröfur, sem einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í þriðju löndum, öðrum en Belarús og samstarfslöndunum sem eru á skrá í viðkomandi viðauka við reglugerð (EB) nr. 765/2006, leggja fram, víkkað út þegar þessir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir selja, afhenda, flytja eða flytja út vörur, tækni eða þjónustu sem bannað er að selja, afhenda, flytja eða flytja út samkvæmt reglugerð (EB) nr. 765/2006, hvort sem vörurnar, tæknin eða þjónustan er upprunnin í Sambandinu eða ekki. Þessir aðilar geta þó lagt fram kröfur í lögsögu þriðju landa í tengslum við samninga og viðskipti sem slík bönn hafa áhrif á og valda ríkisborgurum aðildarríkis eða lögaðilum, sem eru stofnaðir samkvæmt lögum aðildarríkis, tjóni. Því er nauðsynlegt að víkka út möguleikann á að sækja skaðabætur fyrir dómstólum aðildarríkis.
10) Þessar ráðstafanir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
11) Því ætti að breyta reglugerð (EB) nr. 765/2006 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (EB) nr. 765/2006 er breytt sem hér segir:
1) Ákvæðum 1. gr. bb er breytt sem hér segir:
a) Ákvæði 3. mgr. d falla brott.
b) Eftirfarandi kemur í stað 14. mgr. a:
„14a. Þrátt fyrir 1. og 3. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara sem falla undir SN-númer 8517 62 og 8523 52 eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar, til annarra nota en hernaðarlegra nota og til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð sé ætluð fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet.“
2) Í stað e-liðar 4. mgr. 1. gr. e kemur eftirfarandi:
„e) fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet, sem eru ekki eign rekstrareiningar sem er undir stjórn eða meira en 50% í eigu hins opinbera,“.
3) Í stað e-liðar 4. mgr. 1. gr. f kemur eftirfarandi:
„e) fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet, sem eru ekki eign rekstrareiningar sem er undir stjórn eða meira en 50% í eigu hins opinbera,“.
4) Ákvæðum 1. gr. ra er breytt sem hér segir:
a) Ákvæði 9. mgr. a og 9. mgr. b falla brott.
b) Eftirfarandi kemur í stað 9. mgr. c:
„9c. Frá og með 26. janúar 2026 til 31. desember 2026 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um kaup eða innflutning til Ungverjalands á vörum sem falla undir SN-númer 2901 10 00 og eru upprunnar í eða fluttar út frá Belarús, að því tilskildu að vörurnar séu ætlaðar eingöngu til nota í Ungverjalandi.“
c) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„9f. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númer 3803, 7006, 7008, 7009, 7011, 7013, 7014, 7017, 7018, 7020, 8707 og 8708 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um efndir fram til 25. október 2026 á samningum sem gerðir voru fyrir 24. júlí 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“
5) Í stað 4. mgr. a í 1. gr. s kemur eftirfarandi:
„4a. Þrátt fyrir 1. mgr. og með fyrirvara um kröfur um heimild samkvæmt reglugerð (ESB) 2021/821 geta lögbær stjórnvöld heimilað sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á vélbúnaði sem fellur undir SN-númer 8471 80 eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar, til annarra nota en hernaðarlegra nota og til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, eftir að hafa ákvarðað að slíkur vélbúnaður eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð sé ætluð fyrir borgaraleg rafræn fjarskiptanet.“
6) Í stað 3. mgr. 1. gr. u kemur eftirfarandi:
„3. Lagt er bann við því, frá og með 26. mars 2025, að heimila ríkisborgurum Belarús eða einstaklingum með búsetu í Belarús að eiga eða stjórna, með beinum eða óbeinum hætti, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis og veitir þjónustu tengda sýndareignaveski, sýndareignareikningi eða fjárvörslu sýndareigna, eða gegna störfum í stjórnum þeirra. Frá og með 25. ágúst 2026 skal það bann einnig gilda þegar um er að ræða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis og veitir aðra þjónustu á sviði sýndareigna, eins og skilgreint er í reglugerð (ESB) 2023/1114.“
7) Í stað 2. mgr. 1. gr. y kemur eftirfarandi:
„2. Ákvæði 1. mgr. gilda ekki um ríkisborgara aðildarríkis, ríkisborgara lands sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu eða ríkisborgara Sviss eða um einstaklinga sem hafa tímabundið dvalarleyfi eða búsetuleyfi í aðildarríki, í landi sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu eða í Sviss.“
8) Í stað 1. mgr. 8. gr. h kemur eftirfarandi:
„1. Sérhver aðili, sem um getur í þriðja eða fjórða undirlið 10. gr., skal, við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga rétt á hvers kyns beinum eða óbeinum skaðabótum, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem sá aðili, eða lögaðili, rekstrareining eða stofnun, sem er í eigu eða undir stjórn aðila sem um getur í fjórða undirlið 10. gr., stofnar til vegna krafna sem aðilar, rekstrareiningar og stofnarnir, sem um getur í a-, b-, c-, d- eða e-lið 1. mgr. 8. gr. d, leggja fram hjá dómstólum í þriðju löndum í tengslum við samning eða viðskipti sem hafa orðið fyrir áhrifum af ráðstöfunum, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, sem gripið er til samkvæmt þessari reglugerð, að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki virkan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu. Heimilt er að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem um getur í a-, b-, c-, d- eða e-lið 1. mgr. 8. gr. d, sem lögðu fram kröfur hjá dómstólum í viðkomandi þriðja landi, eða frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru í eigu eða undir stjórn þessara rekstrareininga eða stofnana.“
9) Viðaukunum er breytt í samræmi við viðaukann við þessa reglugerð.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 23. júlí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
T. BYRNE
_________________
(1) Stjtíð. ESB L, 2026/1847, 23.7.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/1847/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 765/2006 frá 18. maí 2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 134, 20.5.2006, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2006/765/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins 2012/642/SSUÖ frá 15. október 2012 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L 285, 17.10.2012, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2012/642/oj).
(4) Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1816 frá 23. júlí 2026 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2026/1816, 23.7.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec_impl/2026/1816/oj).
(5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (Stjtíð. ESB L 150, 9.6.2023, bls. 40, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2023/1114/oj).
(6) Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/513 frá 23. apríl 2026 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2026/513, 23.4.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2026/513/oj).
VIÐAUKI
Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/reg/2026/1846/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.
B deild — Útgáfudagur: 4. nóvember 2026