Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sjávarútvegur, Byggðamál

Undirritunardagur

11. ágúst 2026

Útgáfudagur

12. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 886/2026

11. ágúst 2026

REGLUGERÐ

um (2.) breytingu á reglugerð nr. 136/2026, um strandveiðar.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða:

Þrátt fyrir ákvæði 7. og 8. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar skal Fiskistofa fella úr gildi leyfi til strandveiða, frá sama tíma og strandveiðar eru stöðvaðar með auglýsingu í Stjórnartíðindum, sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, á árinu 2026.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi við lok fiskveiðiársins þann 31. ágúst 2026.

Innviðaráðuneytinu, 11. ágúst 2026.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 12. ágúst 2026

Tengd mál