Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
9. september 2025
Útgáfudagur
23. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1009/2025
9. september 2025
REGLUR
um breytingu á reglum um meistaranám við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands nr. 994/2017.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:
- 2. málsl. 2. mgr. orðast svo í heild sinni: Í iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, rafmagns- og tölvuverkfræðideild og umhverfis- og byggingarverkfræðideild er gefin einkunn í heilum og hálfum tölum frá 6,0 til 10,0.
- Orðin „rafmagns- og tölvuverkfræðideild“ í 3. málsl. 2. mgr. falla brott.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 9. september 2025.
Silja Bára R. Ómarsdóttir.
Magnús Jökull Sigurjónsson.
B deild — Útgáfudagur: 23. september 2025