Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

20. febrúar 2026

Útgáfudagur

6. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 227/2026

20. febrúar 2026

REGLUR

um breytingu á reglum um skipan og fundarsköp háskólaþings Háskóla Íslands, nr. 984/2008.

1. gr.

Orðið „akademísk“ í 3. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglnanna fellur brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðsins „formaður“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: forseti.
  2. Í stað orðsins „varaformaður“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: varaforseti.
  3. Í stað orðsins „formanns“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: forseta.

3. gr.

3. töluliður 5. gr. reglnanna orðast svo: Tveir fulltrúar starfsmanna við stjórnsýslu og stoðþjónustu og einn varamaður fyrir hvorn þeirra skulu kjörnir til tveggja ára í senn í skriflegri eða rafrænni kosningu og annast mannauðssvið framkvæmd kosningarinnar.

4. gr.

Í stað orðsins „stofnana“ í 4. tölulið 5. gr. reglnanna kemur: samstarfsstofnana.

5. gr.

Orðin „Raunvísindastofnun Háskólans“ í 4. tölulið 5. gr. reglnanna falla brott.

6. gr.

Ákvæði til bráðabirgða í lok reglnanna fellur brott.

7. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði, eru settar með heimild í 3. mgr. 10. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 20. febrúar 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 6. mars 2026

Tengd mál