Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
7. nóvember 2016
Útgáfudagur
21. nóvember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 990/2016
7. nóvember 2016
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
1. gr. Innleiðing.
Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2338 frá 11. desember 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur fyrir flugrita, staðsetningarbúnað undir vatni og kerfi til að rekja ferðir flugvéla, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 95 frá 29. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 2023.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e, 28. gr. f og 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 7. nóvember 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2016