Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Mennta- og menningarmálaráðuneytið (2009-2015)

Málaflokkur

Menntamál, Leikskólar

Undirritunardagur

16. maí 2011

Útgáfudagur

29. júní 2011

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 631/2011

16. maí 2011

AUGLÝSING

um gildistöku aðalnámskrár leikskóla.

1. gr.

Með vísan til 13. gr. laga um leikskóla, nr. 90/2008, með áorðnum breytingum, staðfestir mennta- og menningarmálaráðherra hér með gildistöku aðalnámskrár leikskóla, dags. 16. maí 2011, sem birt er sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Aðalnámskráin kemur til framkvæmda eftir því sem við verður komið og skal að fullu vera komin til framkvæmda eigi síðar en að þremur árum liðnum. Jafnframt fellur aðalnámskrá leikskóla nr. 315/1999 úr gildi.

2. gr.

Aðalnámskrá leikskóla lýsir sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um öll börn, kennara og stjórnendur leikskóla og annað starfsfólk, fræðsluyfirvöld í viðkomandi sveitarfélagi og rekstraraðila. Hún er jafnframt viðmið fyrir mat á skólum og skólastarfi, leiðarljós fyrir þá sem fást við námsgagnagerð og kennaramenntun, grundvöllur skólanámskrárgerðar og innra mats skóla og stefnumörkunar sveitarfélaga. Aðalnámskrá veitir einnig foreldrum upplýsingar svo að þeir geti fylgst með starfsháttum skólans, árangri skólastarfs og velferð og líðan nemenda.

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 16. maí 2011.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 29. júní 2011

Tengd mál