Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
29. nóvember 2022
Útgáfudagur
30. nóvember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1297/2022
29. nóvember 2022
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
1. gr.
Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/421 frá 14. mars 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 um ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 220/2022 frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53, frá 11. ágúst 2022, bls. 45-48.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 29. nóvember 2022.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022