Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
20. apríl 2026
Útgáfudagur
30. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 420/2026
20. apríl 2026
REGLUGERÐ
um markaði fyrir sýndareignir.
1. gr. Innleiðing.
Ákvæði eftirfarandi reglugerða skulu gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið:
- Framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1506 frá 22. febrúar 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 með því að tilgreina nánar tilteknar viðmiðanir fyrir flokkun eignatengdra tóka og rafeyristóka sem mikilvægra, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2025 frá 19. september 2025. Ákvörðunin er birt sem fylgiskjal 1 og reglugerðin sem fylgiskjal 2 með reglugerð þessari.
- Framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1507 frá 22. febrúar 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 með því að tilgreina nánar þær viðmiðanir og þætti sem Evrópsku verðbréfastofnuninni, Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni og lögbærum yfirvöldum ber að taka tillit til í tengslum við heimildir til íhlutana, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2025 frá 19. september 2025. Ákvörðunin er birt sem fylgiskjal 1 og reglugerðin sem fylgiskjal 3 með reglugerð þessari.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. og 3. tölul. 1. mgr. 15. gr. laga nr. 101/2025, um markaði fyrir sýndareignir, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. apríl 2026.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
B deild — Útgáfudagur: 30. apríl 2026