Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Akraneskaupstaður
Málaflokkur
Akranes, Gæludýr
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
29. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1498/2025
15. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Akraneskaupstað.
1. gr.
Eigendur katta á Akranesi skulu greiða bæjarsjóði skráningargjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um kattahald á Akranesi nr. 781/2010.
2. gr.
Við umsókn um skráningu kattar skal innheimta gjald sem hér segir:
| a. | Skráning | kr. 5.800 |
| b. | Af skráðum köttum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir: Fyrir hvern kött |
kr. 8.200 |
Ekki skal innheimta eftirlitsgjald sama ár og köttur er skráður.
Fyrir hverja handsömun skráðs kattar, sem er á flækingi og veldur ónæði skal eigandi hans greiða kr. 8.200 til að fá köttinn afhentan aftur.
Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar.
Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.
Ef eigandi gefur sig ekki fram innan sjö sólarhringa og greiðir handsömunargjald og annan áfallinn kostnað er heimilt að aflífa köttinn, sbr. 8. gr. samþykktar um kattahald á Akranesi.
3. gr.
Gjalddagi skv. b-lið 2. gr. er 1. febrúar og eindagi 1. mars. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.
Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
Við afskráningu kattar ber sveitarfélaginu að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.
4. gr.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Akraness með vísan til 10. gr. samþykktar um kattahald á Akranesi og staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, til að öðlast gildi við birtingu.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir kattahald í Akraneskaupstað nr. 1655/2024.
Gjaldskráin var samþykkt af bæjarstjórn Akraness 9. desember 2025.
Akranesi, 15. desember 2025.
Haraldur Benediktsson bæjarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025