Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Reykjanesbær

Undirritunardagur

17. ágúst 2026

Útgáfudagur

1. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 942/2026

17. ágúst 2026

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, nr. 1150/2024.

1. gr.

1. mgr. 47. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs.

2. gr.

B-liður 57. gr. A samþykktarinnar breytist og orðast svo:

  1. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:
    1. Forsetanefnd. Nefndin er skipuð forsetum bæjarstjórnar.
    2. Almannavarnanefnd. Einn aðalmaður og einn til vara, skv. 9. gr. laga um almannavarnir, nr. 82/2008, og samkvæmt samkomulagi um almannavarnanefnd Suðurnesja.
    3. Velferðarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
    4. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara, skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, nr. 68/1994.
    5. Yfirkjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 17. gr. kosningalaga, nr. 112/2021. Undirkjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Undirkjörstjórnir skulu vera jafnmargar og kjördeildir í bæjarfélaginu og heimilt er að kjósa þær síðar.
    6. Landsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúafjöldi samkvæmt lögum og samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúar sitja landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga með umboð Reykjanesbæjar.
    7. Atvinnu- og hafnarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
    8. Skipulagsráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 3. mgr. 6. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010.
    9. Umhverfis- og framkvæmdaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
    10. Menntaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, skv. 6. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008.
    11. Leikskólaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
    12. Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
    13. Öldungaráð Reykjanesbæjar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
    14. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.

3. gr.

1. tl. C-liðar 57. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Umdæmisráð barnaverndar. Bæjarstjórn skipar þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 14. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Ráðið skal skipa einn félagsráðgjafa, einn sálfræðing og einn lögfræðing, sem jafnframt er formaður ráðsins. Ráðsmenn skulu í það minnsta hafa þriggja ára starfsreynslu í barnavernd. Ráðsmaður þarf ekki að eiga lögheimili í umdæmi viðkomandi umdæmisráðs en ekki er heimilt að skipa ráðsmann sem starfar við barnaverndarþjónustu í viðkomandi umdæmi. Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavíkurbær, Suðurnesjabær, Sveitarfélagið Vogar, Sveitarfélagið Árborg, Ásahreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Skaftárhreppur reka saman umdæmisráð barnaverndar samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs barnaverndar.

4. gr.

58. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:

Kjör í stjórnir félaga á vegum Reykjanesbæjar, tilnefningar í stjórnir á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum eða til annarra verkefna sem ekki eru talin upp í 57. gr. A skal fara fram í bæjarráði eða samkvæmt ákvörðun bæjarráðs.

5. gr.

6. mgr. 61. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:

Bæjarlögmaður er staðgengill bæjarstjóra í fjarveru hans. Bæjarstjórn er þó heimilt að taka ákvörðun um hver skuli gegna störfum bæjarstjóra í fjarveru hans til lengri tíma.

6. gr.

2. mgr. 2. gr. viðauka 1.1 breytist og orðast svo: Heimild til afgreiðslu beiðna um endurupptöku máls hafa teymisstjóri barnaverndarþjónustu og sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Beri aðili fram kvörtun vegna afgreiðslu barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar samkvæmt viðauka þessum, skal leiðbeina honum um réttarstöðu sína, m.a. um heimild til að óska endurupptöku stjórnvaldsákvörðunar hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar með hliðsjón af 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

7. gr.

Við samþykktina bætast viðauki 1.2, um fullnaðarafgreiðslu mála hjá velferðarráði Reykjanesbæjar, og viðauki 1.3, um um fullnaðarafgreiðslu mála hjá félagsþjónustu Reykjanesbæjar skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, sem birtir eru með samþykkt þessari.

8. gr.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist til að öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 17. ágúst 2026.

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 1. september 2026

Tengd mál