Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Heilbrigðiseftirlit, Umhverfismál, Eiturefni - spilliefni

Undirritunardagur

27. maí 2026

Útgáfudagur

29. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 592/2026

27. maí 2026

REGLUGERÐ

um (9.) breytingu á reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni.

1. gr.

Stafliðir 1. gr. reglugerðarinnar verða töluliðir, merktir með viðeigandi tölum.

2. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist fjórir nýir töluliðir, 26-29, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1482 frá 24. júlí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar þrávirku lífrænu mengunarefnin tetrabrómódífenýletra, pentabrómódífenýletra, hexabrómódífenýletra, heptabrómódífenýletra og dekabrómódífenýletra, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2026, þann 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 453-456.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/843 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar UV-328, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2026, þann 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 202-206.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1399 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og skyld efnasambönd, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2026, þann 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 207-210.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1930 frá 15. maí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar Dechlorane Plus, sem vísað er til í tl. 12w, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2026, þann 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 211-215.

3. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum gerðum:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1482 frá 24. júlí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar þrávirku lífrænu mengunarefnin tetrabrómódífenýletra, pentabrómódífenýletra, hexabrómódífenýletra, heptabrómódífenýletra og dekabrómódífenýletra.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/843 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar UV-328.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1399 frá 5. maí 2025 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar perflúoróoktansýru (PFOA), sölt hennar og skyld efnasambönd.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1930 frá 15. maí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1021 að því er varðar Dechlorane Plus.

4. gr.

Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í 2. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013, og 43. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu 27. maí 2026.

F.h.r.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir

Hugi Ólafsson

B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026

Tengd mál