Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Útlendingar

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

26. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 724/2026

11. júní 2026

REGLUGERÐ

um breytingu reglugerð um útlendinga nr. 540/2017.

1. gr.

11. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Forgangsröðun umsókna um dvalarleyfi.

Útlendingastofnun er heimilt að forgangsraða afgreiðslu fullbúinna umsókna um dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku umfram aðrar umsóknir.

Þá er stofnuninni heimilt að forgangsraða tímabundið fullbúnum umsóknum innan afmarkaðra dvalarleyfaflokka vegna sérstakra tímafresta t.d. vegna:

  1.  nýrra umsókna um dvalarleyfi námsmanna vegna upphafs skólaárs innlendra menntastofnana,
  2.  félagaskiptaglugga innan íþróttagreinar þegar um er að ræða umsóknir um dvalarleyfi fyrir íþróttafólk.

Útlendingastofnun er heimilt að vinna umsókn um dvalarleyfi nánustu aðstandenda umsækjanda um atvinnu- og dvalarleyfi samhliða umsókn hans enda berist umsóknirnar samtímis eða áður en umsókn um dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku er tekin til vinnslu.

2. gr.

Við 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður, svohljóðandi:

Heimilt er að víkja frá skilyrði 1. mgr. um samfellda dvöl hér á landi þegar útlendingur er í hjúskap eða í skráðri sambúð hérlendis með íslenskum ríkisborgara sem gegnir störfum erlendis á vegum íslenska ríkisins eða er starfsmaður alþjóðastofnunar sem Ísland er aðili að.

3. gr.

Á eftir 38. gr. reglugerðarinnar bætist ný grein, 38. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Mat á áreiðanleika gagna og áhættumat

Við afgreiðslu umsóknar um dvalarleyfi skal Útlendingastofnun leggja mat á trúverðugleika og áreiðanleika þeirra gagna og vottorða sem lögð eru fram til grundvallar umsókn útlendings um dvalarleyfi.

Útlendingastofnun er heimilt, eftir atvikum í samráði við lögreglu og önnur þar til bær stjórnvöld, að meta þörf á mati áreiðanleika vottorða og annarra gagna m.a. með hliðsjón af útgáfuríki, tegund gagna og fyrri reynslu stjórnvalda af mati á sambærilegum gögnum.

Stofnuninni er jafnframt heimilt að sannreyna að uppruni og áreiðanleiki gagna og upprunavottana séu raunveruleg.

Við framkvæmd mats er Útlendingastofnun heimilt að afla umsagnar lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda. Útlendingastofnun er einnig heimilt að afla upplýsinga úr áreiðanlegum alþjóðlegum gagnagrunnum og frá lögreglu og útlendingayfirvöldum á Norðurlöndum.

Ekki er heimilt að byggja ákvörðun um veitingu dvalarleyfis á gagni eða vottorði ef rökstudd ástæða er til þess að efast um að það sé ósvikið eða að uppruni þess eða innihald sé trúverðugt.

Útlendingastofnun er heimilt að birta upplýsingar um hvaða gögn krefjast almennt aukinnar rýni og þar með lengri afgreiðslutíma. Það sama gildir um gögn sem stafa frá upprunaríkjum þaðan sem aukin þörf er á að staðreyna áreiðanleika opinberra gagna. Útlendingastofnun er, við birtingu slíkra upplýsinga, heimilt að byggja á fyrri reynslu stjórnvalda af mati á sambærilegum gögnum og upprunavottunum frá tilteknum upprunaríkjum.

4. gr.

43. gr. b reglugerðarinnar fellur brott

5. gr.

Á eftir 51. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 52. gr., ásamt fyrirsögn, svohljóðandi og breytist númer annarra greina til samræmis:

Endurnýjun dvalarleyfis fyrir sérfræðing
sem hefur lokið doktorsnámi hér á landi

Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi útlendings, sem haft hefur dvalarleyfi á grundvelli 61. gr. laga um útlendinga og lokið hefur doktorsnámi hér á landi, í allt að 12 mánuði til atvinnuleitar á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar, sbr. 3. mgr. 61. gr. laganna, þrátt fyrir að skilyrði b-liðar 1. mgr. 61. gr. séu ekki uppfyllt.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 52. gr., 4. mgr. 53. gr., 8. mgr. 57. gr. og 9. mgr. 58. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 11. júní 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild — Útgáfudagur: 26. júní 2026

Tengd mál