Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Stykkishólmur

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

12. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1659/2025

16. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

1. gr.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms innheimtir gjald fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 1477/2020 um fráveitur í Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:

Fyrir hvern heimæðarstút sem er 6" eða minni 156.000 kr.
Fyrir hvern heimæðarstút sem er stærri en 6“ 260.000 kr.

Í þeim tilvikum þar sem lengd heimæðar frá stofnæð að lóðarmörkum fer yfir 10 metra skal innheimta raunkostnað hverju sinni. Óski húseigandi eftir færslu fráveituheimæðar að nýjum tengipunkti greiðir hann útlagðan kostnað vegna færslunnar.

Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar fjárhæðir margfaldaðar með tveimur.

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976. Fráveitugjald skal nema 0,15% af álagningarstofni íbúðarhúsnæðis og 0,18% af álagningarstofni atvinnuhúsnæðis. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

4. gr.

Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:

Stærð í lítrum    kr.
0-2.000 10.888
2.001-4.000 13.661
4.001-6.000 15.550
6.001-8.000 19.220
8.001-10.000 25.412
Rotþró stærri en 10.000    7.262 pr. umframrúmmetra

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða 4.165 kr.

Fyrir rotþrær stærri en 10.000 l er innheimt samkvæmt reikningi 10.026 kr. á rúmmetra við losun.

Þurfi að fara aukaferð (tæma utan reglubundinnar yfirferðar) er innheimt sérstakt tæmingargjald sem er 96.886 kr. fyrir hverja tæmingu og auk þess 693 kr. fyrir hvern ekinn km eða samkvæmt reikningi.

5. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms 11. desember 2025 staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gjaldskrá nr. 1781/2024 fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

Stykkishólmi, 16. desember 2025.

Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 12. janúar 2026

Tengd mál