Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. júní 2025
Útgáfudagur
27. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 719/2025
12. júní 2025
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 972/2009 um meistaranám við Háskóla Íslands í talmeinafræði.
1. gr.
Í stað orðanna „15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla“ í 4. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglnanna koma orðin: 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
2. gr.
Í stað orðsins „meistarapróf“ í 3. mgr. 4. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
3. gr.
Í stað „BS-prófi“ í staflið a 7. gr. reglnanna kemur: BS-gráðu.
4. gr.
Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 6. málsl. 10. gr. reglnanna kemur orðið: meistaragráðu.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „meistaraprófi“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur orðið: meistaravörn.
- Í stað orðsins „prófið“ 2. málsl. 2. mgr. kemur orðið: vörnina.
6. gr.
Í stað orðsins „prófdag“ í 1. málsl. 14. gr. reglnanna kemur orðið: varnardag.
7. gr.
Í stað orðsins „Meistarapróf“ í 16. gr. reglnanna kemur orðið: Meistaragráða.
8. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við reglur nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. júní 2025.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. júní 2025