Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
28. september 2026
Útgáfudagur
13. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1092/2026
28. september 2026
REGLUR
varðandi útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2026 til 29. júní 2026.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.
2. gr. Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.
Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/1094 frá 21. maí 2026 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2026 til 29. júní 2026 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2026 frá 25. september 2026.
Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): Stjtíð. ESB, deild L, 2026/1094, hinn 22. maí 2026.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 28. september 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 13. október 2026