Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fiskistofa
Málaflokkur
Sjávarútvegur
Undirritunardagur
12. ágúst 2026
Útgáfudagur
12. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 887/2026
12. ágúst 2026
AUGLÝSING
um stöðvun strandveiða.
1. gr.
Frá og með 13. ágúst 2026 eru strandveiðar bannaðar, sbr. 2. mgr. 2. gr. reglugerðar um strandveiðar, nr. 136/2026.
2. gr.
Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, og öðlast þegar gildi.
Fiskistofu, 12. ágúst 2026.
Óttar Gautur Erlingsson,
deildarstjóri veiðiheimilda og gagna.
Kristófer Leó Ómarsson.
B deild — Útgáfudagur: 12. ágúst 2026