Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykjavíkurborg

Málaflokkur

Reykjavík, Umferðarmál

Undirritunardagur

2. september 2025

Útgáfudagur

15. september 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 970/2025

2. september 2025

GJALDSKRÁ

fyrir gjöld á bílastæðum í Reykjavíkurborg.

1. gr. Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum.

Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum eru eftirfarandi:

  1. 630 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 1, hámarkstími 3 klukkustundir.
  2. 230 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 2.
  3. 230 krónur á klukkustund fyrstu tvær klukkustundirnar, en 70 krónur á klukkustund eftir það, á gjaldsvæði 3.
  4. 230 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 4.

2. gr. Gjöld fyrir bílastæðakort íbúa í Reykjavík.

Gjöld fyrir bílastæðakort íbúa er eftirfarandi:

Íbúakort 1:

  1. 1.450 krónur á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.
  2. 2.900 krónur á mánuði fyrir aðrar bifreiðar.

3. gr.

Gjald fyrir deilibílakort er eftirfarandi:

  1. 1.450 krónur á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.

4. gr. Gildistaka og lagastoð.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 25. júní 2025 og á fundi borgarráðs 10. júlí 2025, tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Á sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1571/2024.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 2. september 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 15. september 2025

Tengd mál