Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskólinn á Akureyri
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
29. janúar 2026
Útgáfudagur
13. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 147/2026
29. janúar 2026
REGLUR
um breytingar á reglum um gjaldskrá Háskólans á Akureyri vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds nr. 1211/2020.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglnanna:
- Í stað „kr. 75.000“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: kr. 100.000.
- Í stað „kr. 55.000“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: kr. 75.000.
- 3. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Í stað „kr. 37.500“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: kr. 50.000.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 29. janúar 2026.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor.
B deild — Útgáfudagur: 13. febrúar 2026