Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Fjallabyggð

Undirritunardagur

26. maí 2026

Útgáfudagur

9. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 643/2026

26. maí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar vegna Fljótaganga.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 26. maí 2026 breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 sem samþykkt var í bæjarstjórn 19. mars 2026.

Í breytingunni felst að gerð er breyting á veglínu um Hólsdal og færslu gangamunna fyrir Fljótagöng. Afmörkun íþróttasvæðis 114ÍÞ breytist og stækkar aðeins, afþreyingar- og ferðamannasvæði 113AF fellur út og skilgreint er um 7 ha opið svæði 113OP þess í stað.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 26. maí 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026

Tengd mál