Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Upplýsingar

Undirritunardagur

3. júní 2025

Útgáfudagur

10. júní 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 615/2025

3. júní 2025

AUGLÝSING

um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi sveitarstjórna, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 2. júní 2028:

  1. Carbfix ohf.
  2. Carbfix hf.
  3. Coda Terminal hf.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 3. júní 2025.

Kristrún Frostadóttir.

Benedikt Árnason.

B deild - Útgáfud.: 10. júní 2025

Tengd mál