Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Tryggingar, Vátryggingar

Undirritunardagur

5. maí 2026

Útgáfudagur

20. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 509/2026

5. maí 2026

REGLUR

varðandi útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2025 til 30. mars 2026.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.

2. gr. Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

3. gr. Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/349 frá 17. febrúar 2026 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2025 til 30. mars 2026 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 139/2026 frá 30. apríl 2026.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): Stjtíð. ESB, deild L, 2026/349, hinn 18. febrúar 2026.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 5. maí 2026.

Björk Sigurgísladóttir

varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Linda Kolbrún Björgvinsdóttir

framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 20. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi