Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál, Flutningar
Undirritunardagur
28. nóvember 2025
Útgáfudagur
1. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1284/2025
28. nóvember 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi, nr. 1077/2010.
1. gr.
Við 2. mgr. 50. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, l-liður, svohljóðandi:
- Framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/149 frá 15. nóvember 2024 um breytingu á viðaukunum við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/68/EB í því skyni að laga viðaukana að framförum á sviði vísinda og tækni, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2025, 13. júní 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 12-13.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 28. nóvember 2025.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 1. desember 2025