Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Landbúnaður
Undirritunardagur
22. maí 2025
Útgáfudagur
19. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 660/2025
22. maí 2025
AUGLÝSING
um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma.
Í samræmi við 12. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim eru hér með settar svofelldar reglur um skiptingu varnalína í aðalvarnarlínur og aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma:
1. gr.Aðalvarnarlínur.
Aðalvarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:
1. Hvítárlína:
Ölfusá, Hvítá að Jökulfalli, Jökulfall og Jökulkvísl í Blágnípujökul.
2. Sogs- og Bláskógalína:
Sog frá Ölfusá um Þingvallavatn og úr því um Ármannsfell í Hvalfjarðarlínu við Kvígindisfell.
3. Brúarárlína:
Brúará frá Hvítá í Brúarárskörð um Rótarsand í gíg í Lambahrauni og í gilið í Hagafelli.
4. Hvalfjarðarlína:
Úr Hvalfirði við Múlafjall um Hvalvatn að Kvígindisfelli að Brunnum við Uxahryggi í Hrúðurkarla við Þórisjökul.
5. Snæfellslína:
Úr Skógarnesi um Ljósufjöll í Álftafjörð.
6. Hvammsfjarðarlína:
Úr Hvammsfirði milli Þorbergsstaða og Hrútsstaða um Laxárdalsheiði í Hrútafjörð sunnan Fjarðarhorns.
7. Gilsfjarðarlína:
Úr Gilsfirði um Snartartungu í Bitrufjörð.
8. Tvídægrulína:
Úr Hvammsfjarðarlínu við Skeggöxl um Kvíslavötn og Arnarvatn stóra í Langjökul við Jökulstalla.
9. Miðfjarðarlína:
Úr Miðfirði um Miðfjarðarvatn í Arnarvatn stóra.
10. Kjalarlína:
Milli Langjökuls og Hofsjökuls.
11. Héraðsvatnalína:
Héraðsvötn og Austari-Jökulsá.
12. Eyjafjarðarlína:
Eyjafjarðará sunnan að Mjaðmá að Skjónafelli og að Miklafelli í Hofsjökli.
13. Sprengisandslína:
Úr Miklafelli í Hofsjökli um Fjórðungakvísl að Tungnafellsjökli og um Vonarskarð í Vatnajökul.
14. Skjálfandalína:
Skjálfandafljót og í Tungnafellsjökul.
15. Fjallalína:
Jökulsá á Fjöllum.
16. Lagarfljótslína:
Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót.
17. Reyðarfjarðarlína:
Úr Reyðarfirði upp með þjóðvegi og þaðan upp í Áreyjatind. Úr Áreyjatindi í Sandfell þaðan niður í Gilsá í Grímsá. Grímsá í mörk Vaðs og Geirólfsstaða og þaðan yfir í Hallormsstaðargirðingar í Gilsá í Gilsárdal í Löginn.
18. Hamarsfjarðarlína:
Hamarsá í Hamarsfirði í Þrándarjökul og þaðan í Vesturdalsjökul.
19. Breiðamerkursandslína:
Jökulsá á Breiðamerkursandi.
20. Skeiðarársandslína:
Sandgígjukvísl.
21. Tungnaárlína:
Frá Botnjökli í Mýrdalsjökli um Mælifellssand í Torfajökul, frá Hábarmi um Kirkjufellsvatn í Tungnaá og þaðan að Jökulgrindum í Vatnajökli.
22. Markarfljótslína:
Markarfljót og Fremri-Emstruá.
23. Þjórsárlína:
Þjórsá.
2. gr.Aukavarnarlínur.
Aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:
1. Smjörfjallalína:
Um Smjörvatnsheiði og Smjörfjöll í Dalsá og til sjávar.
2. Brekkuskógarlína:
Fullsæll frá Brúará að mörkum Efri-Reykja og Brekku og í þeim að Brúará við brú á Kóngsvegi.
3. gr.Varnarsvæði.
Samkvæmt ofangreindum varnarlínum í 1. gr. verða til eftirfarandi varnarsvæði:
| Varnarsvæði | Varnarlínur | |
| 1 | Landnámshólf | Hvalfjarðarlína (4) að norðan – Sogs- og Bláskógalína (2) að austan – Hvítárlína (1) að sunnan |
| 2 | Vesturlandshólf | Hvammsfjarðarlína (6) að norðan – Tvídægrulína (9) að austan – Hvalfjarðarlína (4) að sunnan – Snæfellslína (5) að vestan |
| 3 | Snæfellsneshólf | Snæfellslína (5) |
| 4 | Dalahólf | Gilsfjarðarlína (7) að norðan – Hvammsfjarðarlína (6) að sunnan |
| 5 | Vestfjarðahólf | Gilsfjarðarlína (7) að sunnan |
| 6 | Miðfjarðarhólf | Hvammsfjarðarlína (6) að norðan – Tvídægrulína (8) að vestan – Miðfjarðarlína (9) að austan |
| 7 | Norðvesturlandshólf | Miðfjarðarlína (9) og Tvídægrulína (8) að vestan – Kjalarlína (10) að sunnan – Héraðsvatnalína (11) að austan |
| 8 | Tröllaskagahólf | Héraðsvatnalína (11) að vestan – Eyjafjarðarlína (12) að austan |
| 9 | Grímseyjarhólf | Grímsey |
| 10 | Eyjafjarðarhólf | Eyjafjarðarlína (12) að vestan – Skjálfandalína (14) að austan – Sprengisandslína (13) að sunnan |
| 11 | Skjálfandahólf | Skjálfandalína (14) að vestan – Fjallalína (15) að austan |
| 12 | Norðurþings- og Múlahólf | Fjallalína (15) að vestan – Lagarfljótslína (16) að austan |
| 13 | Austfjarðahólf | Lagarfljótslína (16) að vestan – Reyðarfjarðarlína (17) að sunnan |
| 14 | Suðurfjarðahólf | Lagarfljótslína (16) að vestan – Reyðarfjarðarlína (17) að norðan – Hamarsfjarðarlína (18) að sunnan |
| 15 | Suðausturlandshólf | Hamarsfjarðarlína (18) að norðan – Breiðamerkursandslína (19) að vestan |
| 16 | Öræfahólf | Breiðamerkursandslína (19) að austan – Skeiðarársandslína (20) að vestan |
| 17 | Eyjafjalla- og Vestur-Skaftafellssýsluhólf | Skeiðarársandslína (20) að austan – Markarfljótslína (22) að vestan – Tungnaárlína (21) að norðan |
| 18 | Rangárvallahólf | Markarfljótslína (22) og Tungnaárlína (21) að austan – Þjórsárlína (23) að vestan – Sprengisandslína (13) að norðan |
| 19 | Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf | Þjórsárlína (23) að austan – Hvítárlína (1) að vestan |
| 20 | Biskupstungnahólf | Hvítárlína (1) að austan – Brúarárlína (3) að vestan – Kjalarlína (10) að norðan |
| 21 | Grímsnes- og Laugardalshólf | Brúarárlína (3) að austan – Hvítárlína (1) að sunnan og Sogs- og Bláskógalína (2) að vestan |
| 22 | Vestmannaeyjahólf | Vestmannaeyjar |
4. gr.Gildistaka og heimild.
Auglýsing þessi er sett með stoð í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 88/2018 um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma. Auglýsingin tekur þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 22. maí 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.
B deild - Útgáfud.: 19. júní 2025