Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
9. september 2025
Útgáfudagur
17. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 988/2025
9. september 2025
REGLUGERÐ
um (28.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 147., 148. og 149. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/89 frá 20. janúar 2025 um leyfi til að setja á markað duft af heilum lirfum Tenebrio molitor (mjölbjalla), sem hefur verið meðhöndlað með útfjólubláu ljósi, sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 222.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/153 frá 29. janúar 2025 um leyfi til að setja á markað plönturnar Lemna minor og Lemna gibba sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 279.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/167 frá 30. janúar 2025 um leyfi til að setja á markað glúkósýlhesperidín sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 284.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 9. september 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Svava Pétursdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 17. september 2025