Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
26. mars 2026
Útgáfudagur
14. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 366/2026
26. mars 2026
REGLUR
um samstarf eftirlitsstjórnvalda um eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um samstarf Fjármálaeftirlitsins við önnur eftirlitsstjórnvöld um eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr. Samstarf um eftirlit og upplýsingaskipti.
Um upplýsingaskipti Fjármálaeftirlitsins og annarra eftirlitsstjórnvalda vegna samstarfs um eftirlit skv. 109. gr. v laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, fer eftir reglugerðum (ESB) nr. 524/2014 og 620/2014, sbr. 3. gr.
Um starfsemi samstarfshópa eftirlitsstjórnvalda skv. 36. gr. a og 109. gr. j laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, fer eftir reglugerðum (ESB) 2025/790 og 2025/791, sbr. 3. gr.
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 524/2014 frá 12. mars 2014 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru þær upplýsingar sem lögbær yfirvöld í heima- og gistiaðildarríkjum láta hvert öðru í té, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 29. október 2020, bls. 94-102.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 620/2014 frá 4. júní 2014 um tæknilega framkvæmdastaðla að því er varðar upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda í heima- og gistiaðildarríkjum samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 25. apríl 2024, bls. 257-281.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/790 frá 23. apríl 2025 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar rekstrarhlutverk samstarfshópa eftirlitsaðila samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 94/2026 frá 20. mars 2026.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/791 frá 23. apríl 2025 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina almenn skilyrði fyrir starfsemi samstarfshópa eftirlitsaðila og fellir úr gildi framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/98, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 94/2026 frá 20. mars 2026.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum (ESB) 2025/790 og 2025/791 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- https://eur-lex.europa.eu/eli/reg_impl/2025/790/oj/eng, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2025/790, þann 8. ágúst 2025;
- https://eur-lex.europa.eu/eli/reg_del/2025/791/oj/eng, birt í OJ, deild L, undirdeild R, 2025/791, þann 8. ágúst 2025.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. og 12. tölul. 1. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur um samstarf eftirlitsstjórnvalda um eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja. nr. 794/2022.
Seðlabanka Íslands, 26. mars 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Guðmundur Óli Blöndal
forstöðumaður.
B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026