Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
18. febrúar 2015
Útgáfudagur
5. mars 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 223/2015
18. febrúar 2015
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 92. gr.:
- Á eftir staflið h í upptalningu kennslugreina í 1. mgr. 92. gr. bætist við nýr stafliður, svohljóðandi: Til MA-prófs í samanburðarstjórnmálum.
- Á eftir 15. mgr., um diplómanám í hagnýtri jafnréttisfræði, bætist við ný málsgrein, svohljóðandi: Diplómanám í smáríkjafræðum: smáríki Evrópu (Small State Studies: Small States in Europe) er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í MA-nám að uppfylltum inntökuskilyrðum.
2. gr.
2. málsl. 7. mgr. 97. gr. breytist og orðast svo: Námið er samstarfsverkefni tveggja deilda háskólans, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar, í samræmi við sérstakt samkomulag deildanna.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 18. febrúar 2015.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 5. mars 2015